Bleikur dagur í október á Hvanneyri 

Bleikur dagur á Hvanneyri

Dagurinn byrjaði á því að nemendur fengu kynningu á bleiku slaufunni og afhverju við klæðumst bleiku í október. Bleika slaufan táknar von, umhyggju og samstöðu. Með vináttu og samstöðu að leiðarljósi tóku nemendur þátt í skemmtilegri stöðvavinnu. Nemendur leituðu að kærleiksríkum orðum um allan skólann og skrifuðu þau á glugga, unnin var lykilorðavinna þar sem að lykilorðið var bleika slaufan. Einnig gerðu nemendur bleikaslaufur og skrifuðu falleg skilaboð til einhvers sem þeim þykir vænt um.