2.apríl var árshátíð Kleppjárnsreykjadeildar haldin í Logalandi. Allir bekkir höfðu undirbúið atriði sem voru hvert öðru glæsilegra og margir sigrar unnir þegar nemendur komu fram eða sinntu undirbúningi. Yngsta stig var með fjölbreytt atriði þar sem leiknir voru brandarar auk þess sem þau sungu og dönsuðu. Í lokin fluttu þau svo saman lagið Skólarapp. Miðstig bauð upp á þrjú atriði …
Listaverk á Kleppjárnsreykjum
Nemendur í 6. bekk á Kleppjárnsreykjum gerðu þessi listaverk sem fara síðan á sýningu í Borgarnesi vegna Barnamenningarhátíðar.
Smiðjuhelgi á Kleppjárnsreykjum
Dagana 28. – 29. mars síðastliðinn tóku unglingarnir þátt í fjölbreyttum smiðjum. Smiðjurnar voru björgunarsmiðja, briddssmiðja, bifvélasmiðja, landmælingasmiðja, leiklistarsmiðja og pílusmiðja. Nemendur frá Auðarskóla og Reykhóla komu og tóku þátt með unglingastiginu okkar. Í smiðjunum kynntust nemendur starfinu í Björgunarsveitum, spiluðu bridds af miklum móð, gerðu við bremskukerfi í bifvélavirkjun, mældu skólalóðina og fleira í Landmælingum, kynntust pílu íþróttinni og settu upp litla söngleiki. Allir …
4. bekkur á Kleppjárnsreykjum lærir um myndlistarmanninn Réne Magritte og súrealisma.
Nemendur í fjórða bekk eru að læra um myndlistarmanninn Réne Magritte og súrealisma. Síðan máluðu þau myndir í hans anda.
Dagur svefns og stærðfræðinnar
Fjórtándi dagur marsmánaðar hefur verið nefndur dagur stærðfræðinnar, bæði er ritháttur dagsins á ensku 3.14 sem er byrjunin á pí en einnig er það fæðingardagur Albert Einstein. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hefur svo bætt við og fest hann sem alþjóðadag svefnsins. Á Kleppjárnsreykjum var þessi dagur haldinn hátíðlegur með náttfatadegi, bæði nemendur og starfsfólk mætti þá í sínu þægilegasta pússi. Í lok dags spreyttu nemendur …
Upplestrarkeppni Vesturlands í Þinghamri á Varmalandi
Upplestrarkeppni Vesturlands fór fram í Þinghamri á Varmalandi á dögunum. Átta efnilegir nemendur frá fjórum grunnskólum á Vesturlandi tóku þátt í keppninni og sýndu framúrskarandi hæfileika í upplestri. Þátttakendur komu frá Heiðarskóla, Grunnskólanum í Borgarnesi, Grunnskóla Borgarfjarðar og Auðarskóla. Hver og einn nemandi flutti sinn texta og ljóð að eigin vali. Það var greinilegt að nemendurnir höfðu lagt mikla vinnu …
Bekkjarsundmót á Kleppjárnsreykjum
Í mörg ár hefur verið haldið bekkjarsundmót á vordögum á Kleppjárnsreykjum þar sem nemendur í 5.-10. bekk velja sér keppnisgreinar og safna með því stigum fyrir sinn bekk. Í ár var ákveðið að stökkva á góðviðrisdag í mars og hélt Guðjón Guðmundsson íþróttakennari utan um mótið að vanda. Stigahæsti bekkurinn að þessu sinni var 8. bekkur með samanlögð 441 stig. …
Nemendurí 2. bekk á Kleppjárnsreykjum sauma
Nemendur í 2. bekk á Kleppjárnsreykjum saumuðu þessa steinapoka. Þar lærðu þau að festa mismunandi tölur á efni snúa snúru og kappmella.
Þrívíddarprentun
Nemendur í fjórða bekk á Kleppjárnsreykjum eru að læra á þrívíddarforritið Tinkcad og fengu að prenta út húsin sem þau gerðu.
Öskudagur
Öskudeginum var fagnað hjá Grunnskóla Borgarfjarðar þar sem nemendur og starfsfólk klæddi sig í hina fjölbreyttu búninga. Á Hvanneyri var gengið á milli fyrirtækja, sungið og í staðinn fengu nemendur smá gotteri. Á Kleppjárnsreykjum var gotteríi komið fyrir í tunnu sem nemendur slógu síðan botninn úr. Á Varmalandi var köttur (reyndar bangsi) sleginn úr tunnunni og fengu nemendur gotterí að …









