Þemadagar á Kleppjárnsreykjum

Dagana 24. – 26. janúar voru þemadagar á Kleppjárnsreykjum. Unnið var með stefnur skólans; heilsueflingu, útinám, Grænfána, leiðtogann í mér og Réttindaskólann. Ýmis verkefni voru á hverri stöð eins og þrautalausnir, spil, hnitsetning staða í héraði, litir í umhverfinu og borðtennis. Nemendum var skipt upp í hópa þvert á aldur og var ánægjulegt að sjá hve allir nutu sín í …

Þemadagar á Hvanneyri

Þemadagar voru haldnir á Hvanneyri síðasta miðvikudag, fimmtudag og föstudag. Unnið var með Leiðtogann í mér, Réttindaskólann og Grænfánann. Farið var í skemmtilegar umræður um fyrirmyndir, hæfileika, áhrifahringinn, hvað er að vera leiðtogi og margt fleira í þeim dúr.  Beta fór með öllum nemendum í vinnu með Réttindaskólann og Björk vann með þeim  Grænfánaverkefni. Mjög skemmtilegir dagar. 

Þemadagar á Varmalandi

Þemadagar voru haldnir 24. – 26. janúar á Varmalandi þar sem yfirþemað var heilsuefling. Farið var í gönguferð og lært um heilbrigða og óheilbrigða lífshætti. Ræddum um tilfinningar og styrkleika ásamt því að spila saman, gera æfingar og margvíslegar mælingar fyrir heilsuna. Virkilega skemmtilegir dagar með nemendum í 1.-10. bekk sem einkenndust af samvinnu, elju og hjálpsemi.

Bjarni Fritzson

Þriðjudaginn 23. maí kom Bjarni Fritzson og heimsótti nokkra bekki á miðstigi. Hann var kominn til þess að fylgjast með nemendum og skoða hvernig menningin/stemningin var í hópunum. Síðar um daginn var hann með fyrirlestur, kynningu og hópefli fyrir nemendur og foreldra saman þar sem hann fór yfir niðurstöður skoðunar hans. Þetta er liður í því að efla forvarnir ásamt því aðefla góðan bekkjaranda og skapa jákvæða skólamenningu á miðstiginu. Leyfum myndunum að sýna hvernig til tókst.    

5. bekkur V las fyrir skólahóp á Hraunborg

Þriðjudaginn 16. mars kom skólahópur frá Hraunborg í heimsókn á Varmaland. Venjan hefur verið sú að 5. bekkur fari í leikskólann og lesi fyrir skólahópinn þar en ákveðið var að bregða út af vananum og því kom skólahópurinn í heimsókn þetta sinnið. Fyrst kíktu þau við hjá 1. og 2. bekk og tóku þátt í vali áður en þau fóru …

Álfabrenna á Hvanneyri

Hefð hefur skapast fyrir því á Hvanneyri að í kringum þrettándann fara nemendur og starfsfólk í kyndlagöngu út í Skjólbeltin ásamt börnum og starfsfólki úr leikskólanum Andabæ. Taka báðir skólarnir jólatrén meðferðis sem þeir söguðu í byrjun desember og kveikja í þeim. Brennan er afar hátíðleg stund þar sem spiluð er þrettándalög og fá allir heitt kakó og smákökur.           

Danskar jólahefðir

Í desember fengu nemendur á unglingastigi á Kleppjárnsreykjum það verkefni í dönsku að kynna sér danska jólamenningu og hefðir. Þau áttu að velja sér hefð eða lag, kynna sér það vel og kynna fyrir öðrum á þann veg sem þeir vildu og fengu því frelsi til að skila á skapandi hátt. Verkefnið kom mjög skemmtilega út og urðu til Sörur, …

Jólakveðja

Jólakveðja frá starfsfólki Grunnskóla Borgarfjarðar

Litlu jólin

Síðasti dagur fyrir jólafrí er alltaf hress og skemmtilegur. Nemendur og starfsmenn mæta prúðbúnir í skólann. Njóta þess að föndra, syngja, hlusta á jólasögur, skrifa á jólakort, dansa í kringum jólatré, borða góðan mat, möndlugjafir og margt fleira. Að lokinni skemmtun er farið heim þar sem jólafríið tekur við og mæta galvaskir nemendur  í skólann aftur á nýju ári þann …

Piparkökuhúsa hönnun

Síðustu rúmar tvær vikurnar hafa nemendur á mið– og unglingastigi á Varmalandi verið að hann sitt eigið piparkökuhús. Þetta verkefni hefur verið krefjandi á margvíslegan hátt þar sem að baki liggur stærðfræði kunnátta, sköpun, frásagnarhæfni ásamt því að framkvæma síðan baksturinn. Hópurinn hefur skemmt sér nokkuð vel við verkefnið og vinnuna. Sérstaklega þegar kom að því að baka en í því fólst einnig lærdómurinn við að fletja út og vinna með breytilegt efni. Það er nefnilega ekkert auðvelt að baka húseiningar. Hópurinn þurfti einnig að vera vakandi fyrir því að útbúa all sem þarf í heilt hús. Vinnan hefur verið skemmtileg og að lokum voru nemendur sendir heim með sínar húseiningar þar sem þeir setja þær saman með aðstoð foreldra. Vonum að afraksturinn verði til ánægju og yndisauka ásamt góðum samverustundum.