List fyrir alla á miðstigi

Múrbalasláttur á miðstigi

Miðvikudaginn 25. nóv. var mikið fjör og hávaði í íþróttahúsinu á Kleppjárnsreykjum þegar miðstigið fékk heimsókn á vegum verkefnisins List fyrir alla. Tveir trommuleikarar komu að Kleppjárnsreykjum með stafla af múrbölum og nemendur æfðu sig að slá taktinn og lærðu nokkur GRÚV. Krakkarnir voru áhugasöm og einbeitt og náðu ótrúlega flottum samhljómi með þessum einföldu hljóðfærum.