Árshátíðir nemenda á Kleppjárnsreykjum

Dagana 24. og 25. mars sl voru árshátíðarsýningar nemenda GBF á Kleppjárnsreykjum, Þann 24.mars sýndi unglingastigið Stellu í orlofi í Logalandi og þann 25. voru mið- og yngstastigið með sínar sýnngar í nýja matsalnum í skólanum. Báðar þessar sýningar tókust einstaklega vel og báru öllum þátttakendum fagurt vitni um samvinnu, frumleika og útsjónarsemi. Því auk þess að leika og koma fram þá vinna þau sjálf alla leikmynd og hugsa fyrir búningum . Að sjálfsögðu voru kennarar þeirra þeim til aðstoðar og stýrðu þannig að allir fengu að njóta sín. Það skilaði sér í metnaðarfullum sýningum. Vinna við sýningar sem þessar fela í sér mikinn lærdóm sem nemendur búa að í námi og leik.