Nemendur í 9. og 10. bekk hafa frá áramótum verið í eðlisfræði og hafa nú fært sig úr bókinni yfir í meira verklegt nám. Fyrr í vetur voru nemendur í varmafræði og þurftu þau að hanna og smíða kælibox sem gæti haldið snjó á föstu formi í amk 2 klukkustundir. Ýmiss efniviður var nýtt, afgangar úr einangrun, frauðplastumbúðir og fleira, en einnig þurftu nemendur að nefna boxið og skreyta það á einhvern hátt. Nú síðast reyndu
nemendur svo að finna lausn á yfirvofandi orkuskorti með því að reyna að framleiða rafmagn úr
kartöflum. Frábær vinna hjá öllum og við hlökkum öll til að geta haldið áfram af auknum krafti í verklegu þegar raungreinastofa verður komin við skólann.