Forstöðumaður frístundar á Hvanneyri og Tómstundafræðingur í GBF.

janúar 14, 2020
Featured image for “Forstöðumaður frístundar á Hvanneyri og Tómstundafræðingur í GBF.”

Forstöðumaður frístundar á Hvanneyri

 

Auglýst er eftir forstöðumanni Frístundar á Hvanneyri í 60%.

Frístund á Hvanneyri er starfrækt við Grunnskóla Borgarfjarðar. Ungmennasamband Borgarfjarðar hefur umsjón með starfi Frístundar í samstarfi við Borgarbyggð. Meginhlutverk frístundaheimila fyrir 6-9 ára börn er að bjóða þeim innihaldsríkt frístundastarf/tómstundastarf samhliða skyldunámi í öruggu umhverfi þar sem starfshættir einkennast af frjálsum leik og vali. Leiðarljós frístundaheimila er að bjóða öllum börnum þátttöku í fjölbreyttu frístundastarfi án aðgreiningar með það að markmiði að efla sjálfstraust og félagsfærni þeirra. Einnig að bjóða upp á umhverfi sem einkennist af öryggi, fagmennsku og virðingu þar sem jákvæð samskipti og lýðræðislegir starfshættir eru í hávegum hafðir.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun (BEd, BA) á sviði uppeldismenntunar, s.s kennslu, tómstunda – og félagsmálafræði eða sambærileg menntun.
  • Reynsla af stjórnun og skipulögðu starfi með börnum.
  • Hæfni til að skipuleggja faglegt starf og veita því forystu.
  • Hæfni í samskiptum, frumkvæði og sköpunargleði nauðsynleg.

Helstu verkefni

  • Ábyrgð á skipulagi og framkvæmd Frístundar.
  • Að efla félagsfærni og jákvæða sjálfsmynd barna.
  • Stjórnun starfsmanna í Frístund, almenn leiðsögn í starfi og eftirlit með frammistöðu.
  • Ábyrgð með innkaupum og daglegum rekstri Frístundar.
  • Ábyrgð á samskiptum við foreldra, skóla og félög sem sjá um íþróttir og tómstundir fyrir börn.
  • Aðstoðar tómstundafulltrúa við undirbúning og verkstjórn Sumarfjörs.

Verið er að ráða í 60% starf og er æskilegt að viðkomandi getið hafið störf 1. febrúar 2020. Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Við hvetjum áhugasama til að sækja um óháð kyni og uppruna.

Umsóknarfrestur rennur út 23. janúar nk.

Nánari upplýsingar veitir Sigríður Dóra Sigurgeirsdóttir tómstundafulltrúi,  í síma 869-8646 og á netfangið siggadora@umsb.is.

Tómstundafræðingur

 

Auglýst er eftir tómstundafræðingi til starfa við Grunnskóla Borgarfjarðar í 40% starf.

Starf tómstundafræðings við Grunnskóla Borgarfjarðar felst meðal annars í vinnu með nemendaráði skólans og í tómstundastarfi unglingastigs.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun (BEd, BA) á sviði uppeldismenntunar, s.s kennslu, tómstunda – og félagsmálafræði eða sambærileg menntun.
  • Reynsla af stjórnun og skipulögðu starfi með börnum.
  • Hæfni til að skipuleggja faglegt starf og veita því forystu.
  • Hæfni í samskiptum, frumkvæði og sköpunargleði nauðsynleg.

Helstu verkefni

  • Ábyrgð á skipulagi og framkvæmd tómstundastarfs fyrir unglingastig.
  • Vinna með nemendaráði skólans.
  • Að efla félagsfærni og jákvæða sjálfsmynd barna.
  • Ábyrgð á samskiptum við foreldra, skóla og félög sem sjá um íþróttir og tómstundir fyrir börn.

Verið er að ráða í 40% starf og er æskilegt að viðkomandi getið hafið störf 1. febrúar 2020. Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Við hvetjum áhugasama til að sækja um óháð kyni og uppruna.

Umsóknarfrestur rennur út 23. janúar nk.

Nánari upplýsingar veitir Helga Jensína Svavarsdóttir skólastjóri Grunnskóla Borgarfjarðar á netfangið helga.jensina.svavarsdottir@gbf.is  Umsóknir með ferilskrá, meðmælendum og öðrum upplýsingum berist til skólastjóra Grunnskóla Borgarfjarðar.

 


Share: