Ný netföng sveitarstjórnarmanna

Sveitarstjórnarmenn í sveitarstjórn Borgarbyggðar hafa nú fengið ný netföng. Þau eru:   Björn Bjarki Þorsteinsson bjarki@borgarbyggd.is Jónína Erna Arnardóttir jonina@borgarbyggd.is Dagbjartur Ingvar Arilíusson dagbjartur@borgarbyggd.is Ragnar Frank Kristjánsson ragnar@borgarbyggd.is Ingibjörg Daníelsdóttir ingibjorgd@borgarbyggd.is Sigríður G. Bjarnadóttir sigridur@borgarbyggd.is Finnbogi Leifsson finnbogi@borgarbyggd.is Geirlaug Jóhannsdóttir geirlaug@borgarbyggd.is Jóhannes F. Stefánsson johannes@borgarbyggd.is Einnig er hægt að senda póst á alla sveitarstjórnarmenn á netfangið sveitarstjorn@borgarbyggd.is    

Mánudagsklúbbur á Hótel Hamri

Tilkynning: Margir íbúar í Borgarbyggð hafa misst vinnuna á liðnum mánuðum. Dagurinn er oft lengi að líða og þá er rétt að minna á að „maður er manns gaman“. Láttu þér ekki leiðast heima, komdu út og hittu fólk. Unnur og Hjörtur á Hamri bjóða fram aðstöðu fyrir hitting á mánudögum kl. 13.- 16 í vetur. Á fyrsta fundi , …

Stöðvum einelti – fundur í Mennta- og menningarhúsi

Nú stendur yfir eineltisátak Heimilis og skóla – landssamtaka foreldra, Liðsmanna Jerico, Olweusaráætlunarinnar og Ungmennaráðs SAFT í samstarfi við Símann, mennta- og menningarmálaráðuneytið, félags- og tryggingamálaráðuneytið og heilbrigðisráðuneytið, Samband íslenskra sveitarfélaga og styrktaraðila, með fundum sem haldnir eru á 11 stöðum á landinu. Fundur verður í Borgarbyggð fimmtudaginn 21. október næstkomandi. Fundurinn verður haldinn í Mennta- og menningarhúsinu í Borgarnesi …

Borgarafundur um endurskoðun stjórnarskrárinnar

Boðað er til opins borgarafundar um endurskoðun stjórnarskrárinnar í Háskólanum á Bifröst í dag kl. 13.00. Til fundarins er boðað af Stjórnlaganefnd og Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi. Nefndarmenn greina frá áformum um endurskoðun stjórnarskrárinnar, frá þjóðfundi til þjóðarinnar. Fundurinn hefur það að markmiði að sjónarmið íbúa um inntak stjórnarskrárinnar og hvernig samfélag þeir vilja byggja fái hljómgrunn. Allir eru hvattir …

Stjörnuskin á hausttónleikum Tónlistarfélags Borgarfjarðar

Guðrún Ingimarsdóttir, sópran, Anna Guðný Guðmundsdóttir, píanó og Sigrún Eðvaldsdóttir, fiðla koma fram á hausttónleikum Tónlistarfélags Borgarfjarðar í Borgarneskirkju föstudaginn 15. október. Tónleikarnir hefjast klukkan 20.00. Á efnisskránni eru verk eftir Bach, Händel, Holst, Villa Lobos, Mozart, Corelli og Tchaikovsky. Listakonurnar hafa um árabil verið í fremstu röð íslenskra tónlistarmanna og hafa starfað saman við ýmis tækifæri. Framundan eru tónleikar …

Góður gestur á bókasafninu

Gestir héraðsbókasafnsins eru á öllum aldri. Þetta sannaðist fyrir stuttu þegar þessi ungi gestur kom þangað með móður sinni. Litla stúlkan heitir Diljá Fannberg Þórsdóttir og á vafalaust eftir að vera dugleg að sækja safnið heim þegar hún verður eldri.   Þess má geta að heimsóknir á bókasafnið eru tæplega sex þúsund það sem af er þessu ári og er …

(Sauða)Messuboð

Fréttatilkynning: Sannlega segjum við yður að Sauðamessa 2010 verður haldin með viðhöfn á laugardaginn kemur, þann 9. október anno domini 2010. Messuhald hefst með fjárrekstri frá Dvalarheimili aldraðra klukkan 13.30 að staðartíma. Hámenntaðir rekstrarfræðingar munu stýra rekstrinum rétta leið í réttina sem er rétt hjá Skallagrímsgarði. Viljum vér messuhaldarar biðja fólk að verja heimalönd sín á leið þeirri er féð …

Leiðrétt stundaskrá félagsstarfs eldri borgara

Gefin hefur verið út ný stundaskrá hjá félagsstarfi eldri borgara í Borgarnesi og nágrenni. Mistök urðu við gerð fyrri stundarskrár en þar var kórastarf sett á rangan dag. Kórinn mun æfa á þriðjudögum í vetur. Nýju stundaskrána má nálgast hér.  

Ungbarnasundið hefst 8. okt.

Farið verður aftur af stað með ungbarnasund í sérupphitaðri innilauginni í íþróttamiðstöðinni Borgarnesi næsta föstudag kl. 15.00 ef þátttaka er næg. Tekið er á móti skráningu í afgreiðslu íþróttamiðstöðvarinnar. Það er Helga Svavarsdóttir íþróttakennari sem hefur tekið að sér að leiðbeina og eru foreldrar hvattir til að mæta með barnið í heita sundlaugina. Gjald er 1.000 kr. pr skipti. ij …

Fundur um nýja kosti í ylrækt

Næstkomandi laugardag 2. október, boðar Framfarafélag Borgfirðinga til kynningarfundar um ylrækt. Þórhallur Bjarnason garðyrkjubóndi á Laugalandi segir frá ylrækt í héraðinu og vannýttum möguleikum innan húss sem utan. Fundurinn fer að venju fram í Logalandi og hefst hann klukkan 14.00. Framfarafélag Borgfirðinga hvetur fólk til að mæta og taka þátt í umræðum. Á staðnum verða seldar kaffiveitingar.