Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 16. maí 2007 reglur um styrki til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka skv. 2. mgr. 5. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995. Félög og félagasamtök geta nú sótt um styrk til greiðslu fasteignaskatts fyrir árið 2011. Umsóknarfrestur er til 10. maí 2011 og skal öllum umsóknum skilað til fjármálastjóra. Reglur og umsóknareyðublöð liggja frammi …
Ingunn ráðin forstöðumaður íþróttamannvirkja
Á fundi sveitarstjórnar Borgarbyggðar s.l. fimmtudag var samþykkt að ráða Ingunni Jóhannesdóttir í starf forstöðumanns íþróttamannvirkja. Ingunn var valin úr hópi 13 umsækjenda, en hún er leikskólakennari að mennt og hefur starfað í rúm 20 ár við leikskóla sveitarfélagsins síðast sem leikskólastjóri á Varmalandi.
Álagning fasteignagjalda
Lokið er vinnu við álagningu fasteignagjalda í Borgarbyggð 2011 og hafa álagningarseðlar verið sendir til gjaldenda. Gjalddagar eru átta, þ.e. 15. febrúar, 15. mars, 15. apríl, 15. maí, 15. júní, 15. júlí, 15. ágúst og 15. september en eindagi er 30 dögum eftir gjalddaga. Ef heildarfjárhæð er undir 15.000 krónum er einn gjalddagi og er hann 15. maí. Vakin er …
Menningarsjóður Borgarbyggðar 2011-02-14
Stjórn Menningarsjóðs Borgarbyggðar auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum. Tilgangur hans er að efla menningu í Borgarbyggð og er sérstök rækt lögð við grasrót í menningarlífi. Lögð er áhersla á að styrkja einstaklinga og félagasamtök. Styrkir eru verkefnatengdir. Umsókninni fylgi sundurliðuð kostnaðarætlun fyrir verkefnið ásamt greinargerð. Fyrir árslok afhendist sjóðsstjórn skýrsla um nýtingu styrksins. Umsóknir skulu berast …
Hlutastarf á leikskólanum Andabæ
Leikskólinn Andabær á Hvanneyri auglýsir eftir starfskrafti tímabundið vegna forfalla. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem allra fyrst. Um 50% starfshlutfall er að ræða. Nánari upplýsingar veitir Valdís Magnúsdóttir, leikskólastjóri í síma 4370120 eða á netfangið andabaer@borgarbyggd.is.
112 dagurinn í Borgarnesi – 2011
Næstkomandi föstudag 11. febrúar verður 112 dagurinn haldinn um land allt. Viðbragðsaðilar í Borgarfirði ætla að taka höndum saman og sýna bíla, tæki og fleira skemmtilegt á planinu við Hjálmaklett í Borgarnesi, frá kl. 14.00 á föstudag. Björgunarsveitir verða með leitarhesta, bíla og fleiri tæki sem þær og nota við sín störf. Sjúkrabíllinn verður einnig á staðnum og þeir sem …
Niðurstaða samvinnunefndar um niðurfellingu á svæðisskipulagi Mýrasýslu 1998-2010
Samvinnunefnd um svæðisskipulag Mýrasýslu 1998-2010 samþykkti þann 28. janúar 2011 að fella Svæðisskipulag Mýrasýslu 1998-2010 úr gildi. Ástæða niðurfellingarinnar er sú að sveitarstjórn Borgarbyggðar hefur samþykkt að fella úr gildi svæðisskipulagið vegna nýs aðalskipulags Borgarbyggðar 2010 – 2022. Tillaga að niðurfellingu svæðisskipulagsins var auglýst og lá frammi til kynningar á skrifstofu sveitarfélagsins Borgarbraut 14 Borgarnesi, á heimasíðu sveitarfélagsins og á …
Söfnun á rúlluplasti 2011
Nýverið var send út auglýsing um söfnun á rúlluplasti og frestur til að tilkynna þátttöku rann út í gær. Enn er þó möguleiki á að senda inn tilkynningu og eru þeir sem vilja láta sækja til sín plast beðnir um að láta vita af sér sem allra fyrst. Sjá auglýsingu hér.
Prjóna- bóka- kaffi í Snorrastofu
Bókhlaða Snorrastofu í Reykholti hefur undanfarið boðið til handavinnu og bókakvölda sem mælst hafa vel fyrir. Gestir koma með handavinnuna sína og deila hugmyndum um hana og bóklestur auk annarra áhugamála. Ætlunin er að þessi Prjóna- bóka- kvöld verði annan hvorn fimmtudag. Næst mun áhugafólk um handavinnu og bóklestur hittast í Snorrastofu fimmtudaginn 17. febrúar.
Stækkun fuglafriðlands í Andakíl
Í gær var undirrituð staðfesting umhverfisráðherra á stækkun fuglafriðlands í Andakíl, sem áður var aðeins bundið við Hvanneyrarjörðina en nær nú – með stækkuninni – yfir 13 jarðir að hluta til eða öllu leyti. Friðlýsingin felur í sér vernd á búsvæði fyrir fugla og þar með alfriðun fyrir veiði og fulla vernd á votlendum svæðisins. Jafnframt var undirritaður umsjónarsamningur Umhverfisstofnunar …