Yfirlit yfir árangur í flokkun úrgangs – Nýtt efni á heimasíðu

Á heimasíðu Borgarbyggðar undir ,,Þjónusta við íbúa – sorphirða“ á forsíðu hefur verið bætt við nýrri upplýsingasíðu sem heitir ,,Yfirlit yfir flokkun úrgangs innan Borgarbyggðar“. Þar verður að finna upplýsingar um árangur í flokkun úrgangs í Borgarbyggð. Annars vegar er birt kökurit sem sýnir hlutfall milli óflokkaðs og flokkaðs úrgangs fyrir alla Borgarbyggð og þar er þá meðtalinn úrgangur frá …

Saltkjöt og baunir – túkall

Í tilefni sprengidags fjölmenntu eldri borgarar og öryrkjar í saltkjöt og baunir í Félagsstarfinu á Borgarbrautinni. Meðal gesta voru Guðný Baldvinsdóttir á 98. aldursári og Þórður Kristjánsson á því 91., en þau halda bæði eigið heimili, en borða oft í félagsstarfinu. Alla jafna borða 15-20 manns í félagsstarfinu en í dag var fjöldinn um 30 manns. Boðið er upp á …

Frestun á innheimtu fasteignaskatts af hesthúsum í þéttbýli

Sveitarstjórn Borgarbyggðar hefur ákveðið af fresta innheimtu fasteignaskatts á hesthús í þéttbýli meðan að beðið er viðbragða efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis en nefndin hefur verið beðin að taka álagninguna til umfjöllunar.   Eins og kunnugt er hækkaði fasteignaskatturinn við það að álagningin færðist úr a-lið í c-lið 3. gr. laga nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga. Í Borgarbyggð fór álagningarprósentan úr …

Gleði – heilbrigði – árangur

Nýverið fór fram teiknisamkeppni meðal nemenda í Grunnskóla Borgarfjarðar um táknmyndir fyrir einkunnarorð skólans, „gleði – heilbrigði – árangur“. Margar skemmtilegar myndir bárust frá nemendum úr öllum deildum skólans krakkarnir lögðu sig verulega fram um að túlka viðfangsefnið. Sérstök dómnefnd var skipuð til að fara yfir hugmyndirnar og velja tákn. Dómnefndina skipuðu þær Helena Guttormsdóttir á Hvanneyri, Eva Lind Jóhannsdóttir …

Viðurkenning frá slökkviliðinu

Í tengslum við 112 daginn þann 11. febrúar var dregið úr réttum innsendum lausnum í eldvarnagetraun Landssambands slökkviliðs-og sjúkraflutningamanna, en fyrir hver jól er í gangi átak LSS og slökkviliða landsins og er átakinu beint að öllum 8 ára börnum í grunnskólum landsins. Í átakinu er farið yfir þær hættur sem geta skapast við eldsvoða og hvernig eigi að bregðast …

Jón Ingi íþróttamaður Borgarbyggðar 2011

Íþrótta- og tómstundanefnd Borgarbyggðar útnefndi Jón Inga Sigurðsson sundmann, íþróttamann Borgarbyggðar fyrir árið 2011. Þetta er annað árið í röð sem hann hlýtur nafnbótina. Jón Ingi náði góðum árangri á árinu og var meðal annars tvöfaldur aldursflokkameistari í sundi, keppti fyrir hönd unglingalandsliðsins á erlendri grundu og margbætti héraðsmet. Afreksfólk ársins í hverri íþróttagrein var einnig heiðrað auk þess sem …

Ásthildur fræðslustjóri í leyfi

Steinunn Baldursdóttir leikskólastjóri á Klettaborg tekur við starfi fræðslustjóra Borgarbyggðar, tímabundið, frá 15. febrúar til 1. júní næstkomandi. Steinunn mun leysa Ásthildi Magnúsdóttur fræðlsustjóra af á meðan hún verður í veikindaleyfi. Guðbjörg Hjaltadóttir aðstoðarleikskólastjóri mun leysa Steinunni af á Klettaborg.    

Fjölmiðlar og landsbyggðin – málþing í Reykholti

Snorrastofa og Skessuhorn taka saman höndum á 14. afmælisdegi Skessuhorns, laugardaginn 18. febrúar næstkomandi og efna til opins málþings um fjölmiðla á landsbyggðinni, hlutverk þeirra og stöðu. Málþingið verður haldið í Hátíðarsal Héraðsskólans í Reykholti kl. 14.00-17.00. Það verður borið uppi af fyrirlesurum, sem hafa innsýn og reynslu af fjölmiðlum og málefnum þeirra og hafa látið þau mál til sín …

Reykjavíkurborg gerir tilboð í hluta af eignarhluta Borgarbyggðar í Faxaflóahöfnum

Nýverið samþykkti byggðarráð Borgarbyggðar að bjóða til sölu hluta af eignarhlut sínum í Faxaflóahöfnum, en sveitarfélagið á 4.84% í fyrirtækinu. Á fundi borgarráðs í 09. febrúar samþykkti Reykjavíkurborg að gera tilboð í 0.7044 af eignarhluta Borgarbyggðar i Faxaflóahöfnun. Tilboðið í hlutinn hljóðar upp á kr. 75.000.000.-     Byggðarráð Borgarbyggðar samþykkti á fundi sínumsama dag að taka tilboðinu. Samkvæmt sameignarsamningi …

Menningarsjóður Borgarbyggðar – styrkir

Stjórn Menningarsjóðs Borgarbyggðar auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum. Tilgangur hans er að efla menningu í Borgarbyggð og er sérstök rækt lögð við grasrót í menningarlífi. Lögð er áhersla á að styrkja einstaklinga og félagasamtök. Styrkir eru verkefnatengdir. Umsókninni fylgi sundurliðuð kostnaðarætlun fyrir verkefnið ásamt greinargerð. Fyrir árslok afhendist sjóðsstjórn skýrsla um nýtingu styrksins. Umsóknir skulu berast …