Flokksstjórastörf við vinnuskóla Borgarbyggðar 2012

apríl 24, 2012
Vinnuskóli Borgarbyggðar óskar að ráða flokksstjóra fyrir sumarið 2012. Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri, hafa gott lag á unglingum og vera þeim góð fyrirmynd í starfi. Í starfinu felst m.a. að leiðbeina nemendum vinnuskólans og kenna þeim öguð og rétt vinnubrögð við fjölbreytt störf. Vinnutímabilið er 9 vikur eða frá 30. maí til og með 31. júlí. Laun eru samkvæmt kjarasamningum launarnefndar sveitafélaga.
 
 
 
Vinnustaðurinn er tóbakslaus.
Umsóknareyðublöð fást í Ráðhúsi Borgarbyggðar Borgarbraut 14, Borgarnesi og á skrifstofu sveitarfélagsins að Litla-Hvammi í Reykholti en einnig má nálgast umsóknareyðublöðin á heimasíðu sveitarfélagsins www.borgarbyggd.is
Nánari upplýsingar gefa Sigurþór Kristjánsson verkstjóri vinnuskólans í síma 892 7970 eða á netfangið sissi@borgarbyggd.is og Jökull Helgason forstöðumaður Umhverfis- og skipulagssviðs í síma 433 7100 eða á netfangið jokull@borgarbyggd.is
Umsóknarfrestur er til föstudagsins 11. maí n.k.
Jökull Helgason
Forstöðumaður umhverfis- og skipulagssviðs

Share: