Rúmlega 50 krakkar lásu um 300 bækur

Þessar þrjár stúlkur voru meðal þeirra sem tóku þátt í sumarlestrarátaki Safnahúss Borgarfjarðar í ár, en alls tóku 53 börn þátt að þessu sinni og er það nýtt héraðsmet. Bækurnar sem þessir duglegu krakkar lásu voru um 300, hvorki meira né minna. Þetta er sjöunda árið sem Héraðsbókasafn Borgarfjarðar í Safnahúsi efnir til sumarlesturs fyrir börn á aldrinum 6-12 ára. …

Fjallskilaseðlar 2014

Fjallskilaseðlar frá afrétta- og fjallskilanefndum verða aðgengilegir á heimasíðunni. Þeir verða settir inn eftir því sem þeir berast. Til að nálgast seðlana er farið inn á starfsemi undir bláu valstikunni á forsíðu heimasíðunnar. Þar til hliðar er farið í landbúnaður og síðan fjallskilasjóðir. Á þeirri síðu er síðan farið inn á fjallskilaseðlar 2014. Þá má einnig nálgast hér.  

Tólf mánaða á Hraunborg og Andabæ

Sveitarstjórn Borgarbyggðar hefur samþykkt að lækka inntökualdur barna á leikskólanum Andabæ á Hvanneyri og leikskólanum Hraunborg á Bifröst. Frá og með 1. ágúst gátu skólarnir því tekið inn börn frá 12 mánaða aldri. Ákvörðun um að taka ínn ársgömul börn hefur fengið mjög góðar viðtökur. Þrjár umsóknir um leikskólapláss eru nú þegar komnar um pláss í Hraunborg á Bifröst og …

Fjárréttir haustið 2014

                              Réttardagar í Borgarbyggð:   Nesmelsrétt í Hvítársíðu, laugardaginn 6. september. Fljótstungurétt í Hvítársíðu, sunnudaginn 14. september. Kaldárbakkarétt í Kolbeinsstaðahreppi sunnudaginn 6. september. Oddsstaðarétt í Lundarreykjadal, miðvikudaginn 10. september. Brekkurétt í Norðurárdal, sunnudaginn 14. september. Rauðsgilsrétt í Hálsasveit, sunnudaginn 21. september. Svignaskarðsrétt, mánudaginn 15. september. Þverárrétt …

Það er leikur að læra

Nú er sumarleyfum að ljúka og skólarnir í Borgarbyggð hefja störf að nýju. Skólasetning Grunnskóla Borgarfjarðar verður fimmtudaginn 21. ágúst sem hér segir: kl. 10.00 á Kleppjárnsreykjum kl. 12.00 á Hvanneyri kl. 14.00 á Varmalandi í Þinghamri   Grunnskólinn í Borgarnesi hefur skólaárið formlega með setningu í Borgarneskirkju föstudaginn 22. ágúst og er dagskráin eftirfarandi: kl. 10.00, skólasetning hjá 1. …

Auglýsing um skipulag í Borgarbyggð – Bjarnhólar í landi Hamars

Sveitarstjórn Borgarbyggðar auglýsir hér með tillögu að breytingu á aðalskipulagi Borgarbyggðar ásamt umhverfisskýrslu samkvæmt 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var samþykkt í sveitarstjórn Borgarbyggðar 10. apríl 2014. Breytingin felst í að landnotkun við Bjarnhóla í landi Hamars verði breytt úr landbúnaði í sorpförgun og efnistöku samkvæmt uppdráttum og greinargerð dags. 8. apríl 2014. Skipulagssvæðið tekur til 9,8 ha.Tillagan ásamt …

Viðburður í fólkvangnum Einkunnum miðvikudagskvöldið 20. ágúst

Stjórn Skógræktarfélags Borgarfjarðar hefur sent frá sér eftirfarandi tilkynningu.   ,,Miðvikudaginn 20. ágúst kl 18:00 ætlum við í Skógræktarfélaginu að hittast í Einkunum (fyrir ofan Borgarnes). Við ætlum að kíkja eftir sveppum, kveikja eld, gera ketilkaffi, prófa okkur áfram í útieldun, spjalla og fræðast hvert af öðru. Við hvetjum alla hvort sem þeir hafa áhuga á útivist, skógrækt, sveppatínslu og/eða …

Íbúafundur vegna breytinga á umferðarskipulagi

Boðað er til almenns íbúafundar vegna fyrirhugaðra breytinga á umferðarskipulagi á skólaholtinu í Borgarnesi. Í breytingunum felst m.a. að gera einstefnu um Bröttugötu og Helgugötu, breikka gangstéttar, bæta aðgengi fyrir gangandi vegfarendur og gera svokölluð „sleppistæði“ við lóð grunnskólans í Borgarnesi. Nýja umferðarskipulagið er í samræmi við tillögur vinnuhóps sem starfaði á vegum sveitarfélagsins. Á fundinum mun Jökull Helgason forstöðumaður …

Samvera, sveppir og fleira skemmtilegt í Einkunnum

Miðvikudaginn 20. ágúst kl 18.00 ætla félagar í Skógræktarfélagi Borgarfjarðar að hittast í Einkunum. Ætlunin erað kíkja eftir sveppum, kveikja eld, laga ketilkaffi og prófa útieldun, spjalla og fræðast hvert af öðru. Skógræktarfélagar hvetja alla, hvort sem þeir hafa áhuga á útivist, skógrækt, sveppatínslu og/eða náttúruskoðun, til að mæta og saman skemmtilega stund.  

Auglýsing um skipulag í Borgarbyggð – Stóra Brákarey

Sveitarstjórn Borgarbyggðar auglýsir hér með tillögu að breytingu á aðalskipulagi Borgarbyggðar samkvæmt 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var samþykkt í sveitarstjórn Borgarbyggðar 14. ágúst 2014. Breytingin felst í að landnotkun í Stóru-Brákarey verði breytt samkvæmt uppdráttum og greinargerð dagsettri 8. ágúst 2014. Skipulagssvæðið tekur til Stóru Brákareyar.Tillagan mun liggja frammi hjá Skipulagsstofnun, á skrifstofu Borgarbyggðar Borgarbraut 14, Borgarbyggð, frá …