Nesmelsrétt í Hvítársíðu, laugardaginn 10. september Fljótstungurétt í Hvítársíðu, laugardaginn 10 september, sunnudaginn 11. september og laugardaginn 24. september. Kaldárbakkarétt í Kolbeinsstaðahreppi, sunnudaginn 11. september Brekkurétt í Norðurárdal, sunnudaginn 18. september og sunnudaginn 2. október. Svignaskarðsrétt, mánudaginn 19. september og mánudaginn 3. október. Þverárrétt í Þverárhlíð, mánudaginn 19. September (kl. 07:00) og mánudaginn 26. September (kl. 10:00). Hítardalsrétt í Hítardal, …
Skólastarf hefst
Skólastarf vetrarins hófst á skipulagsdögum kennara og annars starfsfólks. Dagarnir voru að hluta til nýttir í að hefja tvö þróunarverkefni. Annars vegar var um að ræða fræðslu um teymiskennslu fyrir grunnskólakennara Grunnskólans í Borgarnesi og Grunnskóla Borgarfjarðar og hins vegar sameiginlegur hugarflugsdagur starfsfólks allra leikskóla og grunnskóla í Borgarbyggð. Teymiskennsla Unnið verður að því í vetur að styðja þá kennara …
Viðhaldsvinna Landsnets á Vesturlandi – Hugsanlegar rafmangstruflanir
Rafmagnslaust verður norðan Skarðheiðar aðfaranótt föstudagsins 26. ágúst frá kl. 01:00 til kl. 06:00 vegna vinnu Landsnets í aðveitustöð við Vatnshamra. Um er að ræða allt svæðið norðan Skarðsheiðar, þ.e. Borgarfjörð, Mýrasýslu og þar með talið alla þéttbýlisstaði, s.s. Borgarnes, Bifröst og Hvanneyri. Búið er að setja tilkynningu inn á heimasíðu RARIK um fyrirhugað straumleysi og víðar. Rarik biðst velvirðingar …
Samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Borgarbyggð
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur staðfest samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Borgarbyggð – hægt er að skoða hana hérna. Samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Borgarbyggð
Frítt í Strætó á Menningarnótt á höfuðborgarsvæðinu
Frítt verður í alla Strætisvagna á höfuðborgarsvæðinu á Menningarnótt, laugardaginn 20. ágúst. Strætó ekur samkvæmt laugardagsáætlun á Menningarnótt. Ekið er samkvæmt hefðbundinni áætlun frá morgni og fram til kl. 22.30. Eftir þann tíma er leiðakerfi Strætó rofið og við tekur sérstakt leiðakerfi sem miðar að því að koma gestum Menningarnætur heim til sín eins fljótt og kostur er. Frá því …
150 ára verslunarafmæli Borgarness
Í tilefni 150 ára verslunarafmælis Borgarness á næsta ári hefur byggðarráð skipað í afmælisnefnd sem halda skal utan um, og skipuleggja, þau hátíðarhöld og þá viðburði sem efnt verður til af þessu tilefni. Í nefndinni eru: Anna Magnea Hreinsdóttir Björk Jóhannsdóttir Guðrún Jónsdóttir Guðveig Eyglóardóttir Theodór Þórðarson Theodóra Þorsteinsdóttir
Fréttatilkynning frá Hringiðunni, Snæfellsbæ og Borgarbyggð
Á dögunum endurnýjuðu Hringiðan Internetþjónusta, Borgarbyggð og Snæfellsbær samkomulag frá 2006 um internetþjónustu á sunnanverðu Snæfellsnesi (frá Hellnum að Hítará). Sem hluti af samkomulaginu mun Hringiðan taka að fullu niður eldra netkerfi og skipta því út fyrir nýrra og betra kerfi. Fjarskiptastaðurinn á Kolviðarnesi verður ljósleiðaravæddur sem mun hámarka eins og kostur er áreiðanleika kerfisins. Vinna við uppfærslu er í …
Umhverfisviðurkenningar – tilnefningar
Umhverfisviðurkenningar 2016 – framlengdur frestur Veittar verða umhverfisviðurkenningar í Borgarbyggð 2016 í eftirfarandi fjórum flokkum: Besti frágangur lóðar við íbúðarhúsnæði Besti frágangur lóðar við atvinnuhúsnæði Snyrtilegasta bændabýlið Sérstök viðurkenning umhverfis-, skipulags- og landbúnaðarnefndar Óskað er eftir tilnefningum í áðurnefndum flokkum og getur hver og einn sent inn margar tilnefningar. Tilnefningar óskast sendar á skrifstofu Borgarbyggðar í bréfi eða tölvupósti á …
Símatími umhverfis – og skipulagssviðs
Vegna mikilla anna á umhverfis – og skipulagssviði hefur verið ákveðið að símatímar starfsmanna sviðsins er sinna skipulags – og byggingarmálum verði eins og hér segir: Mánudagar 10-12 Þriðjudagar 10-12 Miðvikudagar 13-15 Fimmtudagar 10-12 Sveitarstjóri
Matráð vantar að Kleppjárnsreykjum
Vegna forfalla bráðvantar matráð að Kleppjárnsreykjadeild Grunnskóla Borgarfjarðar. Viðkomandi þarf að geta hafið störf nú þegar. Allar nánari veita Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir skólastóri í síma 847-9262 eða Ingibjörg Adda Konráðsdóttir deildarstjóri í síma 840-1520 Skólastjóri