Fjarskiptasjóður úthlutar styrkjum til lagningu ljósleiðara

Stjórn Fjarskiptasjóðs úthlutaði í gær á fundi sínum styrkjum til sveitarfélaga vegna verkefnisins Ísland ljóstengt 2020. Fyrirkomulag úthlutunar styrkja sjóðsins í þetta sinn er á þann veg að sveitarfélögin fá úthlutað styrkjum fyrir næstu þrjú ár þannig að nú liggja fyrir fjárhagslegar upplýsingar til að skipuleggja verkið til enda. Í Borgarbyggð eru rúmlega 500 styrkhæfir tengistaðir. Lagning ljósleiðara í Borgarbyggð …

Styrkir til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka

Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 16. maí 2007 reglur um styrki til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka skv. 2. mgr. 5. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995. Félög og félagasamtök geta nú sótt um styrk til greiðslu fasteignaskatts fyrir árið 2019. Umsóknarfrestur er til 1. maí 2019 og skal umsóknum skilað til fjármálastjóra. Reglur og umsóknareyðublöð liggja frammi í …

Norðurlandamót ungmenna í skák í Borgarnesi

Norðurlandamót ungmenna í skák 11 – 20 ára var sett í Hótel Borgarnesi nú í morgun. Keppendur eru frá Íslandi, Færeyjum, Noregi, Danmörku, Svíþjóð og Finnlandi, 10 frá hverju landi eða samtals 60. Alls eru það á annað hundrað gestir sem dvelja í Borgarnesi yfir helgina í tengslum við mótið. Það verður teflt í dag, föstudag, laugardag og sunnudag. Það …

Miltisbrunagrafir í Borgarbyggð

Undanfarin ár hefur Sigurður Sigurðarson dýralæknir, ásamt konu sinni Ólöfu Erlu Halldórsdóttur, unnið að því hörðum höndum að safna saman upplýsingum um hvar miltisbrunagrafir sé að finna á Íslandi, þ.e.a.s. staði þar sem dýr sem drápust úr miltisbrandi voru grafin. Sýkillinn sem veldur miltisbruna/miltisbrandi myndar dvalargró og lifir nær endalaust niðri í jörðinni og getur þannig valdið nýju smiti komist …

Barnapakkar í Borgarbyggð

Barnapakki Borgarbyggðar var afhentur í fyrsta sinn við smá athöfn á Heilsugæslunni í Borgarnesi miðvikudaginn 13. febrúar. Drengur, sem fæddist 2. janúar síðastliðinn, og var býbúinn að fara í gegnum sex vikna skoðun ásamt foreldrum sínum, þeim Ástrúnu Kolbeinsdóttur og Arnóri Orra Einarssyni, fékk afhentan fyrsta barnapakkann. Bakhjarlar þessa verkefnis eru Kaupfélag Borgfirðinga, Samkaup / Nettó, Lyfja, Borgarbyggð, Aldan – …

Forsætisráðherra í heimsókn

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, heimsótti ráðhús Borgarbyggðar miðvikudaginn 13. Febrúar, í ferð sinni um Vesturland. Með henni í för voru Bjarni Jónsson varaþingmaður VG og Lísa Kristjánsdóttir aðstoðarmaður ráðherra. Forsætisráðherra fundaði með sveitarstjórn Borgarbyggðar um málefni sveitarfélagsins. Farið var yfir fjölmörg mál s.s. samgöngumál, atvinnumál, þróun ferðaþjónustunnar, húsnæðismál, framkvæmdir sveitarfélagsins, fjárhagslega stöðu þess og helstu áherslur inn í framtíðina. Það er …

Iðunnarstaðir í Lundarreykjadal – kynning.

Miðvikudaginn 20. febrúar 2019 milli kl 17:00 og 18:00 verða starfsmenn umhverfis- og skipulagssviðs Borgarbyggðar með opið hús í Ráðhúsi Borgarbyggðar, Borgarbraut 14 í Borgarnesi þar sem tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022 fyrir Iðunnarstaði í Lundarreykjadal verður kynnt sérstaklega þeim sem þess óska. sjá nánar: Iðunnarstaðir i Lundarreykjardal – Hótel og Tjaldsvæði – breyting aðalskipulag Borgarbyggðar 2010-2022

Eldvarnargetraun

Ísak Kári, nemandi í þriðja bekk Grunnskóla Borgarfjarðar á Hvanneyri var á dögunum dreginn út sem vinningshafi í eldvarnagetraun Landsambands slökkviliðs-og sjúkraflutningamanna. Slökkviliðsmenn fara í aðdraganda jólaföstu í heimsókn til allra nemenda í þriðja bekk í grunnskólum landsins þar sem þeir ræða við börnin um hættuna af eldinum og varnir og viðbrögð ef hætta steðjar að. Börnin fá í hendur …

Námskeið – Byggingargátt

Námskeið fyrir iðnmeistara og byggingarstjóra sem þurfa að tengjast rafrænni byggingargátt Mannvirkjastofnunar. Haldið í húsnæði Símenntunar Vesturlands að Bjarnarbraut 8 í Borgarnesi. – sjá nánar á mynd.