Framhaldsskólanemar án atvinnu athugið Á fundi í Mími ungmennahúsi s.l. mánudag sem Ungmennaráð Borgarabyggðar stóð fyrir kom í ljós að um 10 nemendur á framhaldsskólastigi sem hafa ekki fengið vinnu í sumar. Góð umræða var á fundinum um mikilvægi sumarvinnu fyrir framhaldskólanema og mikilvægi vinnu almennt. Nú hefur Háskólinn á Bifröst boðið þessum hópi verkefni og hefst sú …
Safnahús: sumarlestur barna
Héraðsbókasafnið efnir nú í annað sinn til sumarlesturs fyrir börn á aldrinum 6-12 ára, frá 5. júní – 5. ágúst. Markmiðið með verkefninu er að nemendur viðhaldi og þjálfi þá lestrarleikni sem þeir hafa tileinkað sér í skólunum yfir veturinn. Verkefnið er þátttakendum að kostnaðarlausu og er unnið í samstarfi við grunnskólana á svæðinu. Börn á þessum aldri skrá sig …
Atvinnuátak í Borgarbyggð í sumar
Á fundi sínum 6. maí síðastliðinn ákvað Byggðaráð Borgarbyggðar að efna til atvinnuátaks í Borgarfirði í samstarfi við Vinnumálastofnun. Um verður að ræða átaksverkefni á sviði skógræktar, fegrunar umhverfis og varðveislu menningarverðmæta. Átak þetta er unnið í samræmi við reglugerð Félags- og tryggingamálaráðuneytis frá 9. janúar 2009 um „…reglugerð um þátttöku atvinnuleitenda sem tryggðir eru innan atvinnuleysistryggingakerfisins í vinnumarkaðsaðgerðum og …
Tónleikar í Reykholtskirkju – breyting
Norsk og íslensk tónlist hljómar í Reykholtskirkju á Hvítasunnu Hátíðakór frá Hálogalandi í Noregi og Háskólakórinn munu halda sameiginlega tónleika í Reykholtskirkju 1. júní, annan í Hvítasunnu kl. 17.00 Athugið að áður auglýst þátttaka Kammerkórs Akraness fellur niður af óviðráðanlegum orsökum Kirkjukórasamband Suður – Hálogalands í Noregi fagnar 60 ára afmæli um þessar mundir. Af því tilefni var stofnaður …
Tónleikar á Bifröst
Þær Theodóra Þorsteinsdóttir og Ingibjörg Þorsteinsdóttir koma fram á háskólatónleikum í Hriflu miðvikudaginn 27. maí næstkomandi. Tónleikarnir hefjast klukkan 17. 00 og eru öllum opnir. Aðgangur er ókeypis. Theodóra Þorsteinsdóttir sópransöngkona er Borgnesingur. Hún stundaði nám í Tónlistarskóla Borgarfjarðar á yngri árum. Theodóra stundaði söngnám við Söngskólann í Reykjavík, lengst af hjá Ólöfu Kolbrúnu Harðardóttur, en einnig hjá Önnu …
Viðurkenningar körfuknattleiksdeildar Skallagríms
Stjórn Körfuknattleiksdeildar Skallagríms veitti á dögunum viðurkenningar til leikmanna í mfl. karla og kvenna fyrir tímabilið 2008-2009. Viðurkenningar hlutu: Mfl. Karla: Mestu framfarir – Arnar Hrafn Snorrason Mikilvægasti leikmaður – Siguður Þórarinsson. Besti leikmaður – Sveinn Arnar Davíðsson Mfl. Kvenna: Mestu framfarir – Þórkatla Dagný Þórarinsdóttir Mikilvægasti leikmaður – Íris Gunnarsdóttir Besti leikmaður – Rósa Kristín Indriðadóttir Um síðustu …
Brautskráning frá Landbúnaðarháskóla Íslands
Brautskráning frá Landbúnaðarháskóla Íslands fer fram í Reykholtskirkju föstudaginn 29. maí og hefst athöfnin kl. 14:00. Að athöfn lokinni er boðið til kaffiveitinga í matsal Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri.
Gestkvæmt í Reykholti
Frá heimsókn Kallistos Ware í ReykholtÞað hefur verið gestkvæmt hjá Reykholtskirkju-Snorrastofu í maímánuði nú sem fyrr. Ríflega þúsund manns hafa sótt sýningar undanfarnar vikur og fengið fyrirlestra á vegum Snorrastofu um sögu staðarins og haldið og notið tónleika og athafna í kirkjunni. Ferðamenn hafa aðallega verið eldri borgarar frá Norðurlöndunum sem hafa komið í stórum hópum á vegum ferðaskrifstofa sem …
Tónleikar í Reykholtskirkju á Hvítasunnu
Reykholtskirkja_elinKirkjukórasamband Suður – Hálogalands í Noregi fagnar 60 ára afmæli um þessar mundir. Af því tilefni var stofnaður hátíðakór med félögum úr kórum biskupsdæmisins í Norlandsfylki, undir stjórn organistannaIngjerd Grøm og Øivind Mikalsen. Kórinn mun halda tónleika í Reykholtskirkju annan Hvítasunnudag kl. 16.00 ásamt Kammerkór Akraness en stjórnandi hans er Sveinn Arnar Guðmundsson organisti Akraneskirkju. Flutt verður norsk og íslensk …
Sumarstarf Tómstundaskólans
Tómstundaskólinn verður opinn til 19. júní í sumar. Skólinn er opinn öllum grunnskólabörnum í Borgarbyggð. Til að unnt verði að halda námskeið þarf lágmarksþátttöku. Skráning jafngildir þátttöku. Hægt verður að fá morgun-, hádegis-, og síðdegishressingu á meðan námskeiðin standa yfir. Tómstundaskólinn verður opinn frá kl. 07.50 – 16.00. Skráning hefst miðvikudaginn 27. maí kl. 09.00 hjá ritara Grunnskólans í Borgarnesi. …