Safnahús: sumarlestur barna

maí 29, 2009
Héraðsbókasafnið efnir nú í annað sinn til sumarlesturs fyrir börn á aldrinum 6-12 ára, frá 5. júní – 5. ágúst. Markmiðið með verkefninu er að nemendur viðhaldi og þjálfi þá lestrarleikni sem þeir hafa tileinkað sér í skólunum yfir veturinn. Verkefnið er þátttakendum að kostnaðarlausu og er unnið í samstarfi við grunnskólana á svæðinu.
Börn á þessum aldri skrá sig í sumarlesturinn á bókasafninu í Safnahúsi við Bjarnarbraut í Borgarnesi frá og með 5. júní og fá þá um leið skjal þar sem skráðar eru þær bækur sem viðkomandi barn les á ofangreindu tímabili. Þegar bók er aftur skilað er stimplað við hvern titil og nafn þátttakenda sett á miða í pott sem dregið verður úr í lok sumars þar sem einhverjir heppnir bókaormar hljóta vinning. Afgreiðslutími bókasafnsins er 13-18 alla virka daga, en þann 1. júní opnar sýningin Börn í 100 ár og verður hún opin alla daga í sumar frá 13-18, einnig um helgar og á hátíðisdögum.
Á meðfylgjandi mynd má sjá einkennismynd sumarlestrarins í ár. Höfundur: Elín Elísabet Einarsdóttir.
Sjá nánar: www.safnahus.is
 

Share: