Borgfirðingar að gera það gott

Það hefur verið ánægjulegt að fylgjast með fréttum undanfarið því íbúar og fyrirtæki í Borgarbyggð hafa víða látið að sér kveða og unnið til verðlauna á ýmsum sviðum. Nýverið var greint frá því að Reyka vodki, sem framleiddur er af Víngerðinni í Borgarnesi, var valinn besti vodkinn í hinni árlegu samkeppni, International Wine and Spirits, nú á dögunum. Keppnin hefur …

Fjármálafulltrúi tekinn til starfa

Í vor lét Linda Björk Pálsdóttir fjármálastjóri af störfum hjá Borgarbyggð. Hún hefur verið fjármálastjóri Borgarbyggðar frá 2006 og þar áður sveitarstjóri í Borgarfjarðarsveit. Þegar auglýst var eftir nýjum aðila í starfið var ákveðið að breyta því nokkur frá því sem áður var og m.a. var starfsheitinu breytt í fjármálafulltrúa. Einar G. Pálsson viðskiptafræðingur var ráðinn fjármálafulltrúi og hefur hann …

Bjarki Pétursson íslandsmeistari í golfi

Í gær lauk Íslandsmeistaramótinu unglinga í holukeppni í golfi á Hamarsvelli í Borgarnesi. 158 keppendur tóku þátt í mótinu sem fór mjög vel fram. Keppt var í þremur flokkum stúlkna og þremur flokkum drengja. Umsjón mótsins var í höndum Golfklúbbs Borgarness.   Í elsta flokki pilta, sem eru 17 – 18, ára sigraði heimamaðurinn Bjarki Pétursson eftir úrslitaleik við Skagamanninn …

Einnar mínútu þögn, mánudaginn 25. júlí kl. 10:00 vegna harmleiksins í Noregi

Mánudaginn 25. júlí verður einnar mínútu þögn í Noregi, til minningar um fórnarlömb harmleiksins í Noregi síðastliðinn föstudag. Ísland mun sýna norsku þjóðinni samstöðu með því að hafa einnar mínútu þögn á sama tíma sem er kl. 10:00 í dag að íslenskum tíma. Forsætisráðherrra hvetur alla Íslendinga til að sýna samhug sinn með þeim hætti.    

Refa- og minkaveiði

Undanfarið hefur verið mikil umræða um refaveiði í Borgarbyggð líkt og í ýmsum öðrum sveitarfélögum. Í kjölfar þessa kallaði byggðarráð eftir upplýsingum frá umhverfis- og landbúnaðarfulltrúa um veiðarnar. Í samantekt umhverfis- og landbúnaðarfulltrúa sem lögð var fram á fundi byggðarráðs nýverið má glöggt sjá að frá árinu 2001 fram til ársins 2009 er töluverð aukning á fjölda refa sem veiddir …

Kettlingar í óskilum

Tveir kettlingar voru handsamaðir á afleggjaranum að Rauðanesi miðvikudaginn 13. júlí. Þetta eru tvær læður ca. 6 – 8 vikna gamlar Eigandinn er vinsamlegast beðinn að hafa samband við gæludýraeftirlitsmann norðan Hvítár, Huldu Geirsdóttur í síma 861-3371    

Umhverfisviðurkenningar 2011

Frá umhverfis- og skipulagsnefnd: Auglýst eftir tilnefningum frá íbúum Borgarbyggðar Umhverfis- og skipulagsnefnd Borgarbyggðar í samstarfi við Landbúnaðarnefnd hefur ákveðið að veita umhverfisviðurkenningar í Borgarbyggð í eftirfarandi fjórum flokkum: 1. Besti frágangur lóðar við íbúðarhúsnæði. 2. Besti frágangur lóðar við atvinnuhúsnæði. 3. Myndarlegasta bændabýlið. 4. Sérstök viðurkenning umhverfis- og skipulagsnefndar.   Vinsamlega sendið tilnefningar til Bjargar Gunnarsdóttur umhverfis- og landbúnaðarfulltrúa, …

Frá leikskólanum Hnoðrabóli

LEIKSKÓLAKENNARA OG MATRÁÐ VANTAR Á LEIKSKÓLANN HNOÐRABÓL Í REYKHOLTSDAL Við leikskólann Hnoðraból í Reykholtsdal eru laus staða leikskólakennara frá og með 8. ágúst n.k. Um er að ræða fulla stöðu leikskólakennara. Ef ekki fæst leikskólakennari kemur til greina að ráða starfsmenn með háskólapróf eða aðra uppeldismenntun og/eða reynslu. Einnig er laus 60% staða matráðs við skólann frá og með 8. …

Starfsfólk í búsetuþjónustu

Starfsfólk óskast til starfa í búsetuþjónustu fatlaðra í Borgarnesi. Starfið felst í að aðstoða fólk með fötlun, í daglegu lífi, inni á heimilum þess og úti í samfélaginu. Starfið er vaktavinna. Unnið er á morgun-, kvöld- og helgarvöktum. Umsækjandi þarf að vera eldri en 20 ára og vera með ökuréttindi. Laun samkvæmt kjarasamningum. Nánari upplýsingar gefur Hulda Birgisdóttir í síma …

Úttekt á starfsemi Grunnskólans í Borgarnesi

Nýverið lét mennta- og menningarráðuneytið gera úttekt á starfsemi Grunnskólans í Borgarnesi, en skólinn var í hópi nokkurra grunnskóla sem gerð var úttekt á þetta árið. Úttektin var unnin af þeim Halldóru Kristínu Magnúsdóttur og Unnari Þór Böðvarssyni. Hún er unnin í samræmi við lög um grunnskóla nr. 91/2008 og er markmið hennar að leggja mat á starfsemi skólans með …