Heilsueflandi framhaldsskóli – gull til Menntaskólans

Menntaskóli Borgarfjarðar hefur hlotið tvenn gullverðlaun fyrir verkefnið Heilsueflandi framhaldsskóli á skólaárinu 2012 – 2013. Verðlaunin eru fyrir framúrskarandi árangur; í fyrsta lagi við að tryggja tækifæri nemenda og starfsfólks til hreyfingar og í öðru lagi fyrir aðgengi nemenda og starfsfólks að hollum mat.   Heilsueflandi framhaldsskóli byggist á þeirri stefnu að nálgast forvarnir út frá víðtæku og jákvæðu sjónarhorni …

Yngstu nemendurnir fá öryggisvesti

Félagar úr Björgunnarsveitinni Brák komu færandi hendi í Grunnskólann í Borgarnesi og gáfu skólanum 33 endurskinsvesti. Vestin eru ætluð yngstu nemendum skólans og koma sér sannarlega vel í vettvangsferðum þeirra.Það voru nemendur í fyrstu bekkjum skólans sem tóku á móti gjöfinni. Björgunarsveitinni Brák eru færðar bestu þakkir fyrir þessa góðu gjöf.    

Ársreikningur Borgarbyggðar

Ársreikningur Borgarbyggðar fyrir árið 2012 er kominn á heimasíðuna. Ársreikninginn má nálgast hér og sundurliðanir hér.  

Ljóð unga fólksins

Nýverið kom út bókin Ljóð unga fólksins en í henni er úrval ljóða eftir börn sem tóku þátt í samkeppninni Ljóð unga fólksins 2013. Alls bárust yfir 900 ljóð í keppnina og voru 70 þeirra valin í bókina. Nemendur í 5. – 6. bekk Grunnskóla Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum sendu inn ljóð. Ljóð Ásdísar Lilju Arnarsdóttur, Bækur, var valið til birtingar …

Umsækjendur um starf skipulags- og byggingarfulltrúa

Nýlega var auglýst eftir umsóknum um starf skipulags- og byggingarfulltrúa hjá Borgarbyggð. Eftirtalin sóttu um starfið: Berglind Björg Sigvaldadóttir, Einar Magnús Einarsson, Guðjón Þór Ragnarsson, Gunnar Sigurgeir Ragnarsson, Ingvar Helgi Ómarsson, Jóhann Víðir Númason, Kristinn Lúðvik Aðalbjörnsson, Lulu Munk Andersen, Magnús Þórðarson, Ólafur Þ. Stefánsson, Ólöf Guðný Valdimarsdóttir, Ómar Örn Kristófersson, Sigurbjörg Ósk Áskelsdóttir, Sigurður Friðgeir Friðriksson, Sveinn Rúnar Traustason, …

Tónlistarskólinn – innritun og vortónleikar

Næstkomandi föstudag 10. maí og mánudaginn 13. maí verður innritun nýrra nemenda í Tónlistarskóla Borgarfjarðar. Áhugasömum er bent á að hringja í síma 437 2330 eða senda tölvupóst á netfangið tskb@simnet.is. Þá er fólki einnig velkomið að líta við í skólanum þessa daga og fá að prófa hljóðfæri og spyrjast fyrir. Vortónleikar skólans verða sem hér segir: Mánudagur 13. maí …

Menningarsjóður Borgarbyggðar 2013-05-08

Úthlutað hefur verið úr Menningarsjóði Borgarbyggðar. Við skoðun á umsóknum var lögð áhersla á grasrótarstarf í héraði. Umsóknir voru alls 19 talsins og hljóðuðu upp á tæplega 6 milljónir. Úthlutað var kr. 1.650.000 til 15 verkefna. Eftirtaldir hlutu styrk úr sjóðnum: Freyjukórinn Kórastarf 120.000 Theodóra Þorsteinsdóttir Tónleikar 50.000 Gleðigjafar Kórastarf 120.000 IsNord Tónlistarhátíð 120.000 Samkór Mýramanna Kórastarf 120.000 Söngbræður Kórastarf …

Vortónleikar menntaskólakórsins

Vortónleikar kórs Menntaskóla Borgarfjarðar verða í Borgarneskirkju í kvöld, miðvikudaginn 8. maí og hefjast kl. 20.30. Kórsöngur, einsöngur og hljóðfæraleikur. Enginn aðgangseyrir en kórfélagar taka glaðir móti frjálsum framlögum. Allir velkomnir.  

Til foreldra barna 7 – 10 ára

Sumarstarf fyrir börn 7-10 ára Starfið hefst þann 10. júní og verður í 4 vikur, þ.e. til 5. júlí. Starfsemin verður með þeim hætti að ráðinn verður 1 fullorðinn aðili til að halda utan um starfið en síðan mun hópur unglingar úr unglingavinnunni verða til aðstoðar. Um verður að ræða samveru úti og innileiki, vettvangsferðir o.fl. Starfsemin fer fram í …

Til foreldra barna 11 – 13 ára

Sumarstarf fyrir börn 11 – 13 ára Starfið hefst 10. júní og verður í 4 vikur, þ.e. til 5. júlí. Starfsemin verður með þeim hætti að ráðinn verður 1 fullorðinn aðili til að halda utan um starfið en síðan mun hópur unglingar úr unglingavinnunni verða til aðstoðar. Boðið verður upp á smíðavöll, leikskólavinnu, vettvangsferðir, útivist og einnig eru hugmyndir um …