Skipulagsauglýsingar í Borgarbyggð

Sveitarstjórn Borgarbyggðar hefur samþykkt að auglýsa eftirfarandi skipulag: Ölvaldsstaðar II – breytt aðalskipulag Sveitarstjórn samþykkti 20. maí 2015 að auglýsa lýsingu vegna breytingar á aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010 – 2022. Í breytingunni felst breyting á landnotkun úr landbúnaðarsvæði í frístundasvæði og er sett fram á uppdrætti með greinargerð dags. 5. maí 2015. Tillagan verði auglýst frá 23. september til og með …

Lýsing vegna aðalskipulagsbreytingar – Jaðar 9, 16, 17 og 24 á Mýrum

Sveitarstjórn samþykkti 13. ágúst 2015 að auglýsa lýsingu vegna breytingar á aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010 – 2022.   Breytingin felst í að landnotkun á lóðunum Jaðar 9, 16,17 og 24 verði breytt úr landbúnaði í frístundasvæði. Skipulagið nær yfir um 64,2 ha land: Jaðar 9 (5,5 ha), Jaðar 16 (5,6 ha), Jaðar 17 (40 ha) og Jaðar 24 (13,1 ha). Gert …

SKÓLASTJÓRI Í BORGARBYGGÐ

Staða skólastjóra við Andabæ, Hvanneyri er laus til umsóknar. Andabær er skóli fyrir 74 börn sem byggir starf sitt á útinámi og náttúru- og umhverfismennt. Leitað er að skólastjóra til að leiða uppbyggingu skólastarfsins í samvinnu við starfsfólk, foreldra og börn. Skólastjóri tekur einnig virkan þátt í að móta skólasamfélag Borgarbyggðar með uppbyggilegum og framsýnum hætti í samvinnu við fjölskyldusvið …

Borgarbyggð auglýsir eftir sálfræðingi, talmeinafræðingi og dagforeldrum

  Sálfræðingur – Starfshlutfall er 50 – 100%. Verkefni og ábyrgðarsvið Forvarnarstarf til að stuðla að velferð barna og ungmenna Snemmtækt mat á stöðu nemenda, greining og ráðgjöf Ráðgjöf til foreldra og barna Stuðningur við starfsemi og starfshætti í skólum með ráðgjöf og fræðslu Greining og meðferð vegna barnaverndarmála Önnur teymisvinna á fjölskyldusviði Hæfniskröfur Löggildur sálfræðingur Hæfni í mannlegum samskiptum …

Stuðningsfjölskyldur – stuðningur við börn

Við leitum að fólki sem er tilbúið til að gerast stuðningsfjölskylda. Hlutverkið felst í að taka barn/börn inn á heimilið t.d. yfir helgi. Um er að ræða börn með fötlun eða börn sem búa við erfiðar félagslegar aðstæður.   Við leitum einnig að fólki sem er tilbúið til að vera stuðningur við börn / unglinga 3-4 tíma á viku – …

Blandaðu flandrið

                Evrópska samgönguvikan 16. -22. september er átak um bættar samgöngur. Yfirskrift vikunnar að þessu sinni er Veljum. Blöndum. Njótum. Markmið með átakinu er að hvetja fólk til umhugsunar um eigin ferðavenjur og virkja það til að nota fjölbreyttari ferðamáta í sínu daglega lífi, s.s. að nota almenningssamgöngur, hjóla eða ganga í bland …

Skýrsla sveitarstjóra 10. september

Kolfinna Jóhannesdóttir flutti skýrslu sveitarstjóra á fundi sveitarstjórnar 10. september. Í máli sínu fór hún yfir nokkur þau verkefni sem unnið hefur verið að að undanförnu. Fundargerð sveitarstjórnar er hægt að nálgast á vef Borgarbyggðar. Skýrsluna má nálgast hér.  

Köttur í óskilum – 2015-09-10

Þessi köttur er í vörslu hjá gæludýraeftirliti Borgarbyggðar. Hann var handsamaður á Hvanneyri.   Þeir sem telja sig þekkja til kattarins á myndinni eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við umhverfisfulltrúa Borgarbyggðar í síma 437-7100 eða í gæludýraeftirlitsmann í síma 892-5044.  

Heimsókn frá Reykjavíkurborg

Föstudaginn 4 september komu í heimsókn til Borgarbyggðar starfsmenn hverfastöðva Umhverfis-og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar. Fóru þeir í í skoðunarferð um Borgarbyggð þar sem þeir fóru m.a. upp í Reykholtsdal, á Hvanneyri á Búvélasafnið, upp í Einkunnir og í Borgarnes m.a. í áhaldahús Borgarbyggðar sem er staðsett út í Brákarey.    

Kynninguna frá íbúafundi 2. september á Hvanneyri má nálgast hér

Sveitarstjórn boðaði til opins íbúafundar um rekstur og skipulag fræðslumála í Landbúnaðarháskóla Íslands miðvikudaginn 2. september sl. Á fundinum fór fram kynning á ákvörðunum sveitarstjórnar um breytingar á rekstri og skipulagi Grunnskóla Borgarfjarðar Hvanneyrardeild. Kynninguna má nálgast hér.