Við viljum minna á kynningarferð Persónuverndar sem farin verður um landið nú næstu daga. Ný persónuverndarlöggjöf, byggð á reglugerð Evrópusambandsins, tók gildi hérlendis 15. júlí síðastliðinn en löggjöfin markar tímamót í sögu persónuverndarlöggjafar í Evrópu. Af því tilefni heldur Persónuvernd í kynningarherferð um landið þar sem áhugasömum verður boðið að sækja kynningarfundi um nýju löggjöfina. Sérstaklega verður fjallað um það …
Mynduðu hjarta á baráttudegi gegn einelti
Fimmtudagurinn 8 nóvember var árlegur baráttudagur gegn einelti. Í tilefni þess fóru nemendur og starfsfólk Grunnskólans í Borgarnesi á íþróttavöllinn og mynduðu þar hjarta til að sýna samstöðu í baráttu gegn einelti. Börnin okkar eiga rétt á því að líða vel í skóla. Jákvæður skólabragur skiptir sköpum fyrir líðan og starfsgleði nemenda og starfsfólks og getur haft sömu áhrif og …
Fjárhagsáætlun 2019 – fyrri umræða
Fjárhagsáætlun fyrir árin 2019-2022 var lögð fram til fyrri umræðu á fundi sveitarstjórnar fimmtudaginn nóvember sl. Þar er lögð fram tillaga til fjárheimilda fyrir árið 2019 og fjárhagsáætlun fyrir árið 2020-2022. A hlutinn í rekstri sveitarfélagsins nefnist sá hluti í starfsemi þess sem annast almenna þjónustu (svo sem fræðslumál, félagsþjónustu, æskulýðs- og íþróttamál og byggingar- og skipulagsmál) sem fjármögnuð er …
Grunnskóli Borgarfjarðar auglýsir eftir skólaliða frá 1. desember 2018
Grunnskóli Borgarfjarðar auglýsir eftir skólaliða frá 1. desember 2018 Um er að ræða 50% stöðu við Kleppjárnsreykjadeild skólans. Vinnudagurinn er frá 8-16 en og er unnið miðvikudag, fimmtudag og föstudag aðra vikuna og fimmtudag og föstudag hina vikuna. Starf skólaliða felst m.a. í ræstingu, leiðsögn og umsjón með börnum í leik og starfi. Mikilvægt er að umsækjendur hafi góða færni í …
Norræna bókmenntavikan og Dagur íslenskrar tungu
Snorrastofa helgar starf sitt Norrænu bókmenntavikunni, sem er haldin á vegum Norrænu félaganna 12.-18. nóvember. Yfirskrift vikunnar er: Hetjur norðursins. Dagur íslenskrar tungu, 16. nóvember, fellur vel að þessu starfi og eykur mikilvægi þess að unnið sé að ræktun bóklesturs og iðkun tungu og bókmennta um öll Norðurlönd. Mánudagur 12. nóvember kl. 10: Vikan hefst með morgunstund með börnum frá …
Vöðvasullur og hundahreinsun
Samkvæmt upplýsingum frá Matvælastofnun hefur borið óvenjumikið á því á þessari sláturtíð, að vöðvasullur finnist í sláturfé á Vesturlandi. Um er að ræða bandorm og millihýsill hans er hundur. Mesta áhættan er ef hundar komast í hrámeti, t.d. af heimaslátruðu. Sýkillinn smitast ekki í fólk, en veldur tjóni vegna skemmda á kjöti og veldur hugsanlega óþægindum fyrir féð. Til að stöðva …
Námsferð tónlistarkennara haust 2018
Kennarar Tónlistarskóla Borgarfjarðar lögðu land undir fót í lok október 2018 og fóru í námsferð til Kanarí eyja (Gran Canaria). Forsagan að því að ákveðið var að heimsækja þessa eyju er að Theodóra Þorsteinsdóttir skólastjóri og fjölskylda hennar héldu tónleika á Kanarí um jólin 2016 og unnu þá með þarlendum píanóleikara. Í höfuðborg Gran Canaria, Las Palmas er mjög góður …
Safnahús, leiðsögn á laugardag
Næstkomandi laugardag, 10. nóvember, verður aukaopnun í Safnahúsi kl. 13.00 – 15.00, þar sem Helgi Bjarnason sýningarstjóri veitir leiðsögn um Hvítárbrúarsýninguna. Sýningin var opnuð að viðstöddu fjölmenni á 90 ára afmælisdegi brúarinnar, 1. nóvember s.l. Þar flutti Helgi ávarp auk Baldurs Þórs Þorvaldssonar sem talaði fyrir hönd Vegagerðarinnar, sem er samstarfsaðili Safnahúss um verkefnið. Hvítárbrúin á sér merka byggingarsögu og …
177. fundur sveitarstjórnar
SVEITARSTJÓRN BORGARBYGGÐAR FUNDARBOÐ FUNDUR Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Borgarbyggðar fimmtudaginn 8. nóvember 2018 í ráðhúsinu að Borgarbraut 14 í Borgarnesi og hefst kl. 16:00. DAGSKRÁ Skýrsla sveitarstjóra. Fundargerð sveitarstjórnar 10.10. (176) Fundargerðir byggðarráðs 18.10, 25.10, 01.11, 5.11. (466, 467, 468, 469) Fundargerð fræðslunefndar 18.10. (173) Fundargerð umhverfis – skipulags – og …
Val tilboðs í útboði nr. 20720 Ljósleiðari í Borgarbyggð
Það tilkynnist hér með að tilboð frá SH Leiðarinn ehf., kt. 550904-2920 í ofangreindu útboði hefur verið valið enda tilboðið metið hagstæðast fyrir kaupanda samkvæmt valforsendu útboðslýsingar. Samkvæmt 1. mgr. 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 (OIL) er óheimilt að gera samning í kjölfar ákvörðunar um val tilboðs fyrr en að liðnum tíu daga biðtíma , frá deginum …