Safnahús, leiðsögn á laugardag

nóvember 8, 2018
Featured image for “Safnahús, leiðsögn á laugardag”

Næstkomandi laugardag, 10. nóvember, verður aukaopnun í Safnahúsi kl. 13.00 – 15.00, þar sem Helgi Bjarnason sýningarstjóri veitir leiðsögn um Hvítárbrúarsýninguna. Sýningin var opnuð að viðstöddu fjölmenni á 90 ára afmælisdegi brúarinnar, 1. nóvember s.l. Þar flutti Helgi ávarp auk Baldurs Þórs Þorvaldssonar sem talaði fyrir hönd Vegagerðarinnar, sem er samstarfsaðili Safnahúss um verkefnið. Hvítárbrúin á sér merka byggingarsögu og gegndi veigamiklu hlutverki í samgöngum á Íslandi í rúma hálfa öld.  Hún þykir einnig sérstaklega fallegt mannvirki og prýðir héraðið sem innansveitarleið eftir að Borgarfjarðarbrúin var tekin í notkun um 1980.

Helgi Bjarnason er sýningarstjóri og hefur samið allan texta og valið ljósmyndir. Er það mikla starf allt unnið í sjálfboðavinnu. Heiður Hörn Hjartardóttir er hönnuður sýningarinnar sem er hluti af dagskrá Menningararfsárs Evrópu í samvinnu við Minjastofnun Íslands.  Framköllunarþjónustan í Borgarnesi annaðist prentun veggspjalda og Kaupfélag Borgfirðinga veitti verkefninu góðan styrk sem ber vott um ræktarsemi félagsins við hið borgfirska samfélag fyrr og síðar. Verkefnið er helgað minningu Þorkels Fjeldsted, fyrrum bónda í Ferjukoti sem lést fyrir aldur fram árið 2014.  Þorkell lét sér alltaf mjög annt um að varðveita sögulegan fróðleik og miðla honum í lifandi frásögn. Hann gegndi veigamiklu hlutverki í hátíðahöldum vegna 80 ára afmælis brúarinnar í ágúst árið 2008. Þorkell var gjarnan kallaðir Keli af þeim sem hann þekktu og á opnunardaginn bað Geirabakarí fyrir kveðju til samkomunnar og lagði til svokallaða „Kelabita” í minningu hans.

Ljósmynd með frétt: Guðrún Jónsdóttir.


Share: