Söngkeppni félagsmiðstöðvanna á Vesturlandi verður ekki haldin í Hjálmakletti eins og auglýst var. Keppnin hefur verið færð yfir í félagsmiðstöðina Óðal og hefst þar kl. 19.00 í kvöld.
Skákdagurinn á Íslandi
Fimmtudaginn 26. janúar er skákdagurinn á Íslandi. Stefnt er að því að fá sem flesta að tafli um allt land til heiðurs Friðriki Ólafssyni stórmeistara, en 26. janúar er fæðingardagur hans. Skákfélagar í UMSB hafa fengið stórmeistarann Helga Ólafsson til að koma og tefla fjöltefli í Hyrnutorgi kl 16.00. Vonast er eftir að sem flestir komi og reyni sig við …
Söngkeppni í Hjálmakletti
Söngkeppni félagsmiðstöðva á Vesturlandi fer fram í Hjálmakletti fimmtudaginn 26. janúar næstkomandi. Vinningsatriðin taka svo þátt í lokakeppni Samfés sem haldin verður í Laugadalshöllinni þann 3. mars en þrjú atriði frá Vesturlandi og Vestfjörðum geta komist áfram. Keppnin í Hjálmakletti hefst sutndvíslega kl. 19.00. Sjá auglýsingu hér
Til fasteignaeigenda í Borgarbyggð
Lokið er álagningu fasteignagjalda í Borgarbyggð árið 2012 og hafa álagningarseðlar verið sendir til gjaldenda.Vakin er athygli á að álagningarseðlarnir verða einnig aðgengilegir á „mínum síðum“ á netsíðunni Island.is Gjalddagar eru tíu, sá fyrsti var 20. janúar og síðan 15. hvers mánaðar fram í október. Eindagi er fimmtánda dag næsta mánaðar eftir gjalddaga. Greiðsluseðlar verða eingöngu sendir til þeirra sem …
Styrkir vegna íþrótta-, æskulýðs-, og tómstundamála
Borgarbyggð auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna íþrótta-, æskulýðs- og tómstundamála á árinu 2012. Um styrki geta sótt félög og aðrir aðilar sem sinna íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarfi í sveitarfélaginu eða hafa með höndum aðra sambærilega starfsemi. Umsókn þarf að fylgja yfirlit yfir fjárhagsstöðu ársins 2011, yfirlit yfir fjölda virkra iðkenda og aldursskiptingu þeirra, fjárhagsáætlun fyrir árið 2012 og áætlanir …
Starfsmenntabrautin í Gettu betur í kvöld
Starfsmenntabraut Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri keppir við Fjölbrautarskóla Suðurlands í Gettu betur í kvöld, mánudaginn 23. janúar. Keppni liðanna hefst kl. 19.30 á rás 2.Fyrir hönd Hvanneyringa keppa þeir Sigurður Heiðar Birgisson, Gylfi Sigríðarson og Jón Árni Magnússon. Þjálfari liðsins er Egill Gunnarsson nemi á þriðja ári í búvísindum við Landbúnaðarháskólann.
Styrkir til atvinnumála kvenna
Fréttatilkynning Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir um styrki til atvinnumála kvenna er velferðarráðherra veitir árlega. Styrkir þessir hafa verið veittir síðan árið 1991 og er markmið þeirra að efla atvinnulíf og auka aðgengi kvenna að fjármagni. Til ráðstöfunar að þessu sinni eru 30 milljónir og er hámarksstyrkur að þessu sinni kr. 3.000.000. Sérstök ráðgjafanefnd metur umsóknir og er umsóknarfrestur …
Menntaskóli Borgarfjarðar í Gettu betur – 2012
Menntaskóli Borgarfjarðar keppir við Borgarholtsskóla í Gettu betur í kvöld, fimmtudaginn 19. janúar. Keppni liðanna hefst kl. 20.00 á rás 2.Fyrir hönd Menntaskóla Borgarfjarðar keppa Inga Björk Bjarnadóttir, Jóhann Snæbjörn Traustason og Bjarki Þór Grönfeldt Gunnarsson. Þjálfari liðsins er Heiðar Lind Hansson. Varamenn eru Þorkell Már Einarsson sem aðstoðar einnig við þjálfun og Bárður Jökull Bjarkarson.
Myndir af Grímshúsi
Vegna vinnu við teikningar af Grímshúsi við Borgarneshöfn vantar okkur upprunalegar myndir af húsinu eða myndir sem teknar voru áður en hætt var að nota það og neglt var fyrir glugga. Þeir sem eiga myndir af Grímshúsi í fórum sínum eru beðnir að hafa samband við Jökul Helgason forstöðumann Umhverfis- og skipulagssviðs í síma 433 7100 eða á netfangið jokull@borgarbyggd.is …
Hætt við hækkun dvalargjalda á leikskólum
Á fundi sveitarstjórnar Borgarbyggðar í gær var samþykkt tillaga Bjarka Þorsteinssonar formanns byggðarráðs að falla frá fyrirhugaðri hækkun á leikskólagjöldum í Borgarbyggð á árinu 2012. Þar með er dregin til baka sú ákvörðun sveitarstjórnar, sem tekin var við afgreiðslu fjárhagsáætlunar ársins, að hækka gjaldskrá leikskóla sveitarfélagsins um 3%. Samþykkt sveitarstjórnar byggir á því að tekjur sveitarfélagsins voru hærri á …