Til fasteignaeigenda í Borgarbyggð

janúar 24, 2012
Lokið er álagningu fasteignagjalda í Borgarbyggð árið 2012 og hafa álagningarseðlar verið sendir til gjaldenda.Vakin er athygli á að álagningarseðlarnir verða einnig aðgengilegir á „mínum síðum“ á netsíðunni Island.is
Gjalddagar eru tíu, sá fyrsti var 20. janúar og síðan 15. hvers mánaðar fram í október.
Eindagi er fimmtánda dag næsta mánaðar eftir gjalddaga.
Greiðsluseðlar verða eingöngu sendir til þeirra sem eru 67 ára eða eldri en aðrir geta óskað eftir að fá senda greiðsluseðla, með því að hafa samband við skrifstofu Borgarbyggðar í síma 433-7100 eða á netfangið borgarbyggd@borgarbyggd.is
Ef gjaldendur telja álagninguna ekki rétta er hægt að fara fram á endurálagningu með rökstuddum hætti. Skrifleg beiðni þar um skal berast skrifstofu Borgarbyggðar eigi síðar en mánuði eftir álagningu gjaldanna.
Skrifstofustjóri
 
 

Share: