Hugrún Harpa Ólafsdóttir er Fjallkona Borgarbyggðar 2026

júní 18, 2026
Featured image for “Hugrún Harpa Ólafsdóttir er Fjallkona Borgarbyggðar 2026”

Hugrún Harpa Ólafsdóttir gegndi hlutverki Fjallkonunnar við hátíðarhöld Borgarbyggðar á 17. júní í ár.

Hugrún er nýstúdent frá Menntaskóla Borgarfjarðar og hefur verið virk í leiklist, félagslífi og margvíslegu starfi í skólanum.

Við hátíðarhöld dagsins flutti Hugrún Harpa ljóðið Talað við ungt fólk eftir Guðmund Böðvarsson. Hugrún Harpa heimsótti einnig heimilisfólk á Brákarhlíð þar sem hún flutti ljóðið við mikla hrifningu og hlaut mikið lof og þakklæti fyrir.

Borgarbyggð óskar henni velfarnaðar fyrir komandi framtíð.


Share: