Sindri þrefaldur Íslandsmeistari og Kristín setti tvö heimsmet

júní 22, 2026
Featured image for “Sindri þrefaldur Íslandsmeistari og Kristín setti tvö heimsmet”

Íþróttafólkið Sindri Karl og Kristín Þórhallsdóttir náðu framúrskarandi árangri í sínum greinum um síðastliðna helgi.

Sindri Karl varð þrefaldur Íslandsmeistari á Meistaramóti Íslands í frjálsum íþróttum fyrir 15–22 ára, sem fram fór á Akureyri. Sindri keppti í flokki 16–17 ára og sigraði örugglega í 800, 1.500 og 3.000 metra hlaupum.

Kristín Þórhallsdóttir, kraftlyftingakona frá Laugalandi í Borgarfirði, setti tvö heimsmet á heimsmeistaramótinu í klassískum kraftlyftingum sem fram fór í Litáen um helgina. Hún setti heimsmet bæði í samanlögðu og í réttstöðulyftu í sínum flokki.

Kristín, sem er ríkjandi Evrópumeistari, keppti í -84 kílóa flokki í M1-öldungaflokki. Auk heimsmeta vann hún til bronsverðlauna í hnébeygju og hafnaði í 6. sæti af 22 keppendum í sínum flokki.

Borgarbyggð óskar þeim báðum til hamingju með framúrskarandi árangur.


Share: