
Hugrún Harpa Ólafsdóttir gegndi hlutverki Fjallkonunnar við hátíðarhöld Borgarbyggðar á 17. júní í ár.
Hugrún er nýstúdent frá Menntaskóla Borgarfjarðar og hefur verið virk í leiklist, félagslífi og margvíslegu starfi í skólanum.
Við hátíðarhöld dagsins flutti Hugrún Harpa ljóðið Talað við ungt fólk eftir Guðmund Böðvarsson. Hugrún Harpa heimsótti einnig heimilisfólk á Brákarhlíð þar sem hún flutti ljóðið við mikla hrifningu og hlaut mikið lof og þakklæti fyrir.
Borgarbyggð óskar henni velfarnaðar fyrir komandi framtíð.