Borgarbyggð, í samstarfi við Veitur og RARIK, hófu í dag framkvæmdir í Bröttugötu. Þar sem lagnir hitaveitu, vatnsveitu, fráveitu og rafveitu verða endurnýjaðar ásamt öllu yfirborði götu og gangstétta. Unnið verður á milli Gunnlaugsgötu og Egilsgötu og er gert ráð fyrir að framkvæmdum ljúki 30. október nk. Hjáleiðir verða settar upp þar sem það á við, en ljóst er að …
Vígluathöfn fjölnota íþróttahúss í Borgarnesi
Í tilefni þess að nýtt fjölnota íþróttahús Borgarbyggðar verður formlega vígt er öllum boðið að koma og fagna þessum merka áfanga sveitarfélagsins, á miðvikudaginn 26. ágúst kl. 17:00. Boðið verður upp á veitingar og skemmtilega dagskrá fyrir gesti, blöðrudýr, andlitsmálning, fjölbreyttar íþróttastöðvar og margt fleira. Gestum gefst því kostur á að prófa fjölbreytta hreyfingu og kynna sér þá möguleika sem …
Malbiksviðgerðir á Vesturlandsvegi- Undir Hafnarfjalli.
Vegagerðin hefur gefið Colas heimild til eftirtalinna verka ef veður leyfir: Sunnudaginn 23. ágúst er stefnt á að sinna malbiksviðgerðum á Vesturlandsvegi- Undir Hafnarfjalli. Einhverjar tafir geta orðið á umferð á meðan framkvæmdum stendur. Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 20:00 til 07:00 . Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og …
Nýjar vatnsrennibrautir vígðar í Borgarnesi
Nýjar vatnsrennibrautir við sundlaugina í Borgarnesi voru vígðar í gær við mikinn fögnuð sundlaugargesta. Fulltrúar í sveitarstjórn stýrðu vígsluathöfninni ásamt Unni Brá Konráðsdóttur, sveitarstjóra. Framkvæmdir á endurnýjun rennibrautanna hófust í júní síðastliðnum, en þær gömlu höfðu þá þjónað landanum og gestum í nær 30 ár.Framkvæmdirnar drógust nokkuð á langinn og því hafði eftirvæntingin verið mikil. Það mátti svo sannarlega sjá …
Íbúakönnun um nafn á fjölnota íþróttahúsi Borgarbyggðar
Nú geta íbúar skráð sig inn í þjónustugáttina á heimasíðu Borgarbyggðar og tekið þátt! Hægt er að taka þátt hér Úr fyrri könnun bárust margar góðar hugmyndir. Nú hafa nokkur nöfn verið valin úr þeim tillögum og biðjum við íbúa Borgarbyggðar að kjósa það nafn sem þeim líst best á. Hvaða nafn finnst þér henta nýja fjölnota íþróttahúsinu best?
Þjóðaratkvæðagreiðsla um aðildarviðræður við ESB
Þjóðaratkvæðagreiðsla um aðildarviðræður við ESB Við þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst 2026 er skipan í kjördeildir í Borgarbyggð sem hér segir: Borgarneskjördeild í Hjálmakletti í Borgarnesi Þar kjósa íbúar á svæðinu milli Hítarár og Gljúfurár, á Hvanneyri og Andakíl. Kjörfundur hefst kl. 9:00 og lýkur kl. 22:00. Lindartungukjördeild í félagsheimilinu Lindartungu Þar kjósa íbúar á svæðinu milli Hítarár og Haffjarðarár. Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 18:00. …
Framkvæmdir á Hringveginum í gegnum Borgarnes
Kvöldin 16. ágúst, 17. ágúst og 18. ágúst er stefnt á að fræsa Hringveginn í gegnum Borgarnes frá Borgarbraut að brú yfir Borgarfjörð. Veginum er lokað á meðan framkvæmdir standa yfir en merkt verður hjáleið um Borgarfjarðarbraut. Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 21:00 til kl. 07:00 umrædd kvöld. Merkingar og upplýsingaskilti verða sett upp skv. viðhengdri merkingaráætlun, sem að má finna hér, Lokunarplan Vegfarendur …
Ert þú að bjóða upp á íþrótta- eða tómstundastarf fyrir börn og ungmenni í Borgarbyggð?
Nú er verið að taka saman framboðsbækling fyrir komandi starfsár og viljum við tryggja að sem flestir aðilar eigi þar sinn stað. Ef þú býður upp á námskeið, æfingar, klúbbastarf eða aðra tómstunir fyrir börn og ungmenni, þá hvetjum við þig til að senda okkur upplýsingar á sonjalind@borgarbyggd.is. Frestur til að senda inn upplýsingar er til og með 17. ágúst nk.
3. fundur Sveitarstjórnar Borgarbyggðar
3. fundur Sveitarstjórnar Borgarbyggðar fer fram í fundarsalnum Borg í ráðhúsi Borgarbyggðar, Digranesgötu 2, fimmtudaginn, 13. ágúst nk. og hefst kl. 16:00. Hér má sjá dagskrá fundarins: 3. fundur Sveitarstjórnar Borgarbyggðar Streymi frá fundinum má finna hér.
Sólmyrkvagleði Borgarbyggðar
Í tilefni af einstöku náttúruundri mun Borgarbyggð bjóða íbúum og gestum að eiga góða stund í Skallagrímsgarði þann 12. ágúst næstkomandi þar sem boðið verður upp á tónlist, popp, candy floss og hoppukastala. Því er tilvalið að taka með sér tjaldstóla og teppi og upplifa þessa merkilegu stund saman. Athugið að öllum er frjálst að koma sér fyrir hvar sem …









