Hreinsunarátak í þéttbýli vorið 2026

Hreinsunarátak 2026 Hreinsunarátak í þéttbýli – Vorið 2026. Gámar fyrir gróðurúrgang og timbur verða aðgengilegir vikuna 22.-28. apríl nk. á eftirfarandi stöðum: Bifröst Varmaland Hvanneyri – BÚT-hús Kleppjárnsreykir – gryfjan við Litla-Berg. Ef gámar eru að fyllast þá biðjum við ykkur vinsamlegast hafði samband við Gunnar hjá ÍGF í síma 840-5847 Vakin skal athygli á því að gámar eru ekki …

Skilafrestur framboðslista er 10. apríl 2026

Yfirkjörstjórn mun þá taka á móti framboðslistum á skrifstofu Borgarbyggðar að Digranesgötu 2, 1. hæð milli kl. 10.00 og 12.00. Meðmælendalistum skal skilað í gegnum rafrænt meðmælakerfi á www.island.is og/eða á pappír. Yfirkjörstjórn boðar einnig til fundar mánudaginn 13. apríl n.k. kl. 13.00 á skrifstofu Borgarbyggðar, Digranesgötu 4, 3. hæð þar sem hún úrskurðar um framkomna framboðslista að viðstöddum umboðsmönnum listanna.   Þegar yfirkjörstjórn hefur …

Jóhanna Skúladóttir kveður starf sitt sem héraðsskjalavörður

Um mánaðarmótin urðu þær breytingar hjá Héraðsskjalasafni Borgarfjarðar að Jóhanna Skúladóttir lét af störfum eftir rúmlega 20 ára farsælt starf fyrir safnið og Þórný Hlynsdóttir tók við starfinu. Jóhanna hefur starfað hjá sveitarfélaginu frá árinu 2002, lengst af sem héraðsskjalavörður eða í yfir 20 ár við góðan orðstýr. Er henni þakkað þakkað fyrir gott og óeigingjarnt starf fyrir safnið og …

Gleðilega páska

Borgarbyggð sendir íbúum og landsmönnum öllum bestu óskir um gleðilega páska. Við hvetjum ykkur til að njóta og skapa góðar minningar saman. Ráðhúsið verður lokað yfir páskana en opnar svo aftur þriðjudaginn 7. apríl. Gleðilega hátíð.

Páskaopnun íþróttamiðstöðvarinnar í Borgarnesi

Páskaopnun íþróttamiðstöðvarinnar í Borgarnesi Opið – Skírdag kl.09:00-18:00 Lokað – Föstudaginn langa Opið – Laugardaginn 4.apríl kl.09:00-18:00 Lokað – Páskadag Opið – Annan páskadag kl.09:00-18:00 Gleðilega páska

Páskalokun gámastöðvarinnar við Sólbakka.

Páskalokun verður á Gámastöðinni við Sólbakka dagana 2.,3.,5. og 6 apríl   Opið verður Laugardaginn 4.apríl kl. 10.00-14.00 ÍSLENSKA GÁMAFÉLAGIÐ BORGARNES Sólbakka 12 310 Borgarnes 5775757 igf@igf.is

Tilkynning frá Grunnskólanum í Borgarnesi vegna árshátíðar.

Kæru foreldrar/forráðamenn. Veðrið hefur aldeilis sett strik í reikninginn með árshátíðardaginn okkar en við erum að reyna að gera okkar besta í stöðunni og legið yfir veðurspám og verið í sambandi við bílstjóra skólabílanna. Við höfum ákveðið að halda tveimur sýningum, og verður sú fyrri kl. 18:30 í kvöld, fimmtudag skv plani. Síðari sýningin verður svo á morgun föstudag kl. …

Stofnanir lokaðar 26.mars vegna óveðurs.

Á morgun, fimmtudaginn 26. mars verða allar skólastofnanir Borgarbyggðar lokaðar, þar á meðal Grunnskólinn í Borgarnesi, Grunnskóli Borgarfjarðar,  Listaskólinn, Hnoðraból, Hraunborg, Andabær, Klettaborg og Ugluklettur. Klettaborg og Ugluklettur munu meta stöðuna um hádegi og opna kl.13 ef veður og færð leyfa. Aldan verður lokuð, en Búsetan verður opin, rétt er að benda á að líklega verði skert þjónusta. Íþróttamiðstöðvarnar verða …

Suðaustan hvassviðri og hríð á morgun 26.mars

Spáð er suðaustan roki og stórhríð á morgun fimmtudag 26.mars og búið að gefa út appelsínugula viðvörun við Faxaflóa frá kl 07-13. Suðaustan 20-28 m/s og vindhviður staðbundið yfir 40 m/s með hríð, skafrenning, slæmu skyggni og versnandi færð. Ekkert ferðaveður verður á Kjalarnesi og veginum undir Hafnarfjalli. Vegum þar verður lokað frá klukkan 04:00 í nótt til klukkan 13:00 …