Borgarbyggð í samstarfi við Veitur og Rarik hefja í júní framkvæmdir í Bröttugötu. Þar verða lagnir hitaveitu, vatnsveitu, fráveitu og rafveitu endurnýjaðar ásamt öllu yfirborði á götu og gangstéttum. Áætlað er að vinna hefjist í júní eftir að skóla lýkur og unnið á milli Gunnlaugsgötu og Egilsgötu. Gert er ráð fyrir að vinnu ljúki í október á þessu ári. Hjáleiðir …
Sumarnámskeið Í Borgarbyggð 2026
Skráning er hafin á fjölbreytt og skemmtileg sumarnámskeið fyrir börn í Borgarbyggð. Boðið verður upp á leikja- íþrótta-, leiklistar- og afþreyingarnámskeið með áherslu á útivist, hreyfingu, sköpun og góða samveru yfir sumartímann. Fjölbreytt og mikið úrval spennandi sumarnámskeiða í boði. Námskeiðin eru annarsvegar fyrir börn sem voru að ljúka 4. bekk og eldri og fyrir börn sem voru að ljúka …
Úrslit sveitarstjórnarkosninga 2026 í Borgarbyggð
Sveitarstjórnarkosningar fóru fram 16. maí 2026. Á kjörskrá voru 3.140 kjósendur. Alls voru greidd 2.152 atkvæði og kjörsókn því 68.3%. Auðir atkvæðisseðlar voru 66 og ógildir voru 8. Í sveitarstjórn Borgarbyggðar sitja 9 fulltrúar. Fjórir listar fengu fulltrúa kjörna í sveitarstjórn: A- listi Borgarbyggðarlistinn, 23,5% eða 488 atkvæði- 2 fulltrúar B-listi Framsóknarflokkurinn 25,4% eða 527 atkvæði– 2 fulltrúar D-listi Sjálfstæðisflokkurinn …
Kjörfundir vegna sveitarstjórnarkosninga laugardaginn 16. maí 2026
Við Sveitarstjórnarkosningar laugardaginn 16. maí 2026 er skipan í kjördeildir í Borgarbyggð og Skorradalshrepp sem hér segir: Borgarneskjördeild í Hjálmakletti í Borgarnesi Þar kjósa íbúar á svæðinu milli Hítarár og Gljúfurár, á Hvanneyri og Andakíl. Kjörfundur hefst kl. 9:00 og lýkur kl. 22:00. Lindartungukjördeild í félagsheimilinu Lindartungu Þar kjósa íbúar á svæðinu milli Hítarár og Haffjarðarár. Kjörfundur hefst kl. …
Samningur um rekstur golfvallarins að Hamri
Í blíðunni við Hamar var s.l. miðvikudag undirritaður samningur milli Borgarbyggðar og Golfklúbbs Borgarness um rekstur golfvallarins að Hamri. Samningur þar að lútandi var samþykktur af sveitarstjórn 16. apríl s.l. Golfvöllurinn er í landi Borgarbyggðar og felur samningurinn í sér að golfklúbburinn sér um rekstur, viðhald og uppbyggingu golfvallarins. Þá er í samningnum fjallað um áherslur Golfklúbbs Borgarness á öflugt …
Framboðsfundur í Hjálmakletti- Hlekkur á streymi
Síðasti framboðsfundurinn fer fram í Hjámlakletti í kvöld, 13. maí kl.20:00 Fundarstjórar kvöldins eru þeir Páll Brynjarsson og Gísli Einarsson. Athugið að opið er fyrir spurningagátt, hægt er að opna hlekkinn og senda inn spurningu. Þar er einnig hægt að hafa áhrif á hvaða spurningum verður svarað með því að “líka“ við þær spurningar. Spurningum verður svarað bæði úr sal …
Borgarbyggð óskar eftir tilboðum í skóla- og tómstundaakstur
Borgarbyggð auglýsir nú eftir tilboðum í skóla- og tómstundaakstur fyrir grunnskólanemendur í sveitarfélaginu frá upphafi skólaárs haustið 2026. Útboðinu er skipt í þrjú svæði og innan hvers svæðis eru nokkrar akstursleiðir. Heimilt er að bjóða í einstök svæði, en bjóðandi skal bjóða í allar akstursleiðir innan þess svæðis sem boðið er í. Tilboðum skal skila með rafrænum hætti eigi síðar …
Styrkir til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka
Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 16. maí 2007 reglur um styrki til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka skv. 2. mgr. 5. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995. Félög og félagasamtök geta nú sótt um styrk til greiðslu fasteignaskatts fyrir árið 2026. Umsóknarfrestur er til 1. júní 2026 og skal umsóknum skilað í gegnum „mínar síður“ á heimasíðu Borgarbyggðar eða …
Framkvæmdir hefjast á vatnsrennibrautum við sundlaugina í Borgarnesi
Eftir langa og góða þjónustu er kominn tími til að fjarlægja vatnsrennibrautirnar við Sundlaugina í Borgarnesi, en framkvæmdir hefjast í dag. Um er að ræða endurnýjun en nýjar og glæsilegar vatnsrennibrautir verða settar upp á næstu vikum. Gert er ráð fyrir að uppsetning nýju rennibrautanna hefjist í byrjun júní og að þær verði teknar formlega í notkun um miðjan júní, …
Rafmagnslaust í Miklaholtshreppi, Eyjahreppi og Kolbeinstaðahreppi þann 13. maí
Vegna prófana í dreifistöð verður rafmagnslaust í Miklaholtshreppi, Eyjahreppi og Kolbeinstaðahreppi. frá kl. 11:00 til kl. 16:00 þann 13.5.2026. Mögulega kemur rafmagn á í stuttan tíma meðan á framkvæmd stendur vegna prófana. Nánari upplýsingar veitir stjórnstöð í síma 528 9000. Kort af svæðinu má sjá á rarik.is/rof









