Nýjar vatnsrennibrautir vígðar í Borgarnesi

ágúst 21, 2026
Featured image for “Nýjar vatnsrennibrautir vígðar í Borgarnesi”
Nýjar vatnsrennibrautir við sundlaugina í Borgarnesi voru vígðar í gær við mikinn fögnuð sundlaugargesta. Fulltrúar í sveitarstjórn stýrðu vígsluathöfninni ásamt Unni Brá Konráðsdóttur, sveitarstjóra.
Framkvæmdir á endurnýjun rennibrautanna hófust í júní síðastliðnum, en þær gömlu höfðu þá þjónað landanum og gestum í nær 30 ár.Framkvæmdirnar drógust nokkuð á langinn og því hafði eftirvæntingin verið mikil. Það mátti svo sannarlega sjá í gær þegar stöðugt streymi var í nýju rennibrautirnar frá því þær voru opnaðar.

Ljóst er að nýju rennibrautirnar eiga eftir að gleðja sundlaugargesti um ókomin ár.


Share: