Skólahald að hefjast í Borgarbyggð

ágúst 24, 2026
Featured image for “Skólahald að hefjast í Borgarbyggð”

Nú styttist í að grunnskólarnir í Borgarbyggð taki aftur til starfa og spennandi skólaár fram undan hjá starfsfólki, nemendum og fjölskyldum þeirra.

Í Grunnskóla Borgarfjarðar fer skólasetning fram á morgun, 25. ágúst
Hvanneyri: kl. 9:30
Kleppjárnsreykir: kl. 11:00
Varmaland: kl. 13:00

155 nemendur eru skráðir við Grunnskóla Borgarfjarðar á þessu skólaári en 15 nemendur hefja skólagöngu sína í 1. bekk við skólann í haust.
Skóladagatal og aðrar upplýsingar má finna á vef skólans hér

Skólasetning hjá Grunnskólanum í Borgarnesi fer einnig fram á morgun og í sal skólans
1.–4. bekkur: kl. 10:00
5.–10. bekkur: kl. 10:40

Við Grunnskólann í Borgarnesi verða 332 nemendur á þessu skólaári og þar af hefja 29 nemendur nám í 1. bekk.
Skóladagatal og aðrar upplýsingar má finna á vef skólans hér

Á vef frístundar má einnig finna allar helstu upplýsingar varðandi starfið- umsóknir, frístundastyrki og gjaldskrá.

Við óskum öllum nemendum, foreldrum og starfsfólki góðs gengis á komandi skólaári.


Share: