Sundlaugin í Borgarnesi er alltaf vinsæl um páskahelgina. Opið verður sem hér segir: Skírdag fimmtudaginn 24. mars frá kl. 09.00 – 18.00 Föstudaginn langa 25. mars frá kl. 09.00 – 18.00. Laugardaginn 26. mars frá kl. 09.00 – 18.00. Páskadag sunnudaginn 27. mars frá kl. 09.00 – 18.00 Annan í páskum mánudaginn 28. mars frá kl. 09.00 – 18.00 …
Æsispennandi oddaleikur við Fjölni í kvöld
Ljóst er að Borgfirðingar munu fjölmenna á oddaleik Fjölnis og Skallagríms í átta liða úrslitum í kvöld í Grafarvogi. Leikurinn verður örugglega æsispennandi og ætla Grafarvogsbúar að fjölmenna en Prentsmiðjan Oddi gefur Fjölnismönnum 200 miða á leikinn þannig að við megum hafa okkur öll við ef á að heyrast eitthvað í stúkuhluta Skallagrímsmanna í kvöld. Áfram strákar og gerið ykkar …
Körfuknattleiksdeild styrkir Bostonferð Torfa Lárusar
Á hinum magnaða heimaleik á móti Fjölni í átta liða úrslitum hér síðastliðinn sunnudag tilkynnti stjórn deilarinnar að kaffisjóður kvöldsins rynni óskertur til Torfa Lárusar Karlssonar sem senn fer í erfiða læknisferð til Boston. Vegna þess hve keppnisbúningar Skallagríms og Boston Celtics eru áþekkir gaf Sparisjóðurinn Torfa keppnisbúning Skallagríms til að sýna þeim þarna í Boston okkar græna og gula …
Lionklúbburinn Agla gaf hjartastuðtæki
Í hálfleik í leik Skallagríms og Fjölnis komu fulltrúar Lionsklúbbsins Öglu færandi hendi þegar þær afhentu Íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi hjartastuðtæki. Tækið er til nota í neyðartilfellum sem hugsanlega geta komið upp á jafn fjölmennum samkomustað og íþróttamiðstöðin er en á síðasta ári komu um 150 þúsund manns í húsið. Indriði Jósafatsson íþrótta- og æskulýðsfulltrúi tók við tækinu og þakkaði kærlega …
Aukasýning í kvöld á Bugsy Malone í Óðali
Vegna fjölda áskorana verður aukasýning á árshátíðarverki Nemendafélags Grunnskólans í Borgarnesi „Bugsy Malone“ í kvöld þriðjudagskvöld 15. mars kl. 20.oo Þetta er áttunda sýning á þessari hressilegu sýningu í Óðali. Fjölmennum og styrkjum unglingana í starfi sínu. Um 50 unglingr taka þátt í uppfærslunni og er starf þeirra metið inn í val grunnskólans enda mikið nám þarna í gangi síðustu …
Árshátíðin tókst vel
Leikurum og tækniliði var mikið klappað lof í lófa að lokinni frumsýningu í gær á Bugsy Malone. Fín sýning og fullt af nýjum leikurum sem koma á óvart með vasklegri framgöngu. Leikur, söngur og fullt af gríni…. Velkomin í Óðal.
Árshátíð NFGB, frumsýning í kvöld
Hver stórviðburðurinn rekur annan í félagslífinu. Samféshátíðin ekki fyrr búin en Árshátíð nemendafélagsins er komin á fjalirnar í Óðali. Að þessu sinni er það Bugsy Malone sem unglingarnir taka fyrir og má ætla að sýningin verði lífleg en um 40 unglingar taka þátt í uppsetningunni undir leikstjórn Stefáns Sturlu Sigurjónssonar. Þeir sem taka þátt í uppsetningunni fá starf sitt …
Vel heppnuð ferð á Samféshátíð
Unglingarnir okkar í Óðali voru til fyrirmyndar þegar farið var á Samféshátíðina um síðustu helgi sem að þessu sinni var haldin í Íþróttamiðstöðinni Mosfellsbæ. Samtals fóru 94 unglingar og fjórir fararstjórar í ferðina frá Óðali og var gist í Félagsmiðstöðinni Bólinu Mosfellsbæ. Unglingahljómsveitin Mad Mongoos úr Óðali var ein af þrjátíu böndum sem sóttu um að spila …
Rótarýklúbbur Borgarness gefur gjöf
Rótarýhreyfingin hélt upp á 100 ára afmæli Stjórnarmenn í Rótarýklúbbnum afhenda gjöfinaRotarý alheimshreyfingarinnar í Óðali á dögunum. Fundurinn var öllum opinn. Snorri Þorsteinsson flutti sögu félagsins og mögnuð fræðsluerindi um hræðilegt ástand íbúa í löndum Afríku voru einnig á dagskrá. Rótarýhreyfingin lætur alltaf eitthvað gott af sér leiða í starfi sínu og í tilefni afmælisdagsins gaf …
Fundur um atvinnumál
Sveitarfélögin í Borgarfirði norðan Skarðsheiðar ásamt Verkalýðsfélagi Borgarness boða forsvarsmenn fyrirtækja og stofnana til fundar um atvinnumál á Hótel Borgarnesi mánudagskvöldið 28. febrúar kl. 20.30 Dagskrá fundarins 1. Útgáfa kynningarblaðs um atvinnulíf í Borgarfirði 2. Atvinnuvegasýning 3. Kynning á stöðu klasaverkefnisins í Borgarfirði 4. Samtök atvinnulífsins 5. Efling atvinnulífs í Borgarfirði 6. Önnur mál Við hvetjum alla forsvarsmenn fyrirtækja og …