Veðrið sýndi síðar bestu hliðar í Borgarfirði í gær og þar var Reykholt engin undantekning. Á meðfylgjandi mynd má sjá styttu Snorra Sturlsonar bera við heiðan himin í rúmlega tuttugu stiga hita. Ef flett er upp á heimasíðu Veðurstofu Íslands má sjá fróðlega umfjöllun um hátt hitastig eftir Borgnesinginn og veðurfræðimanninn Trausta Jónsson, en þar kemur m.a. fram að hiti …
Leikhópurinn Lotta sýnir Galdrakarlinn í Oz í Borgarnesi
Laugardaginn 19.júlKl: 14:00 mun Leikhópurinn Lotta sýna Galdrakarlinn í Oz í Borgarnesi. Sýnt verður í Skallagrímsgarði. Frekari upplýsingar eru í síma 770-0403 og á www.leikhopurinnlotta.is. Í sumar mun Leikhópurinn Lotta sýna undir berum himni fjölskyldusýninguna Galdrakarlinn í Oz víðsvegar um landið en leikhópurinn sýndi einmitt Dýrin í Hálsaskógi í fyrrasumar við miklar vinsældir. Flestir þekkja söguna af ævintýralegu ferðalagi …
Veðurblíða og litadýrð
Veðurblíðan hefur verið mikil undanfarið og ekki lát þar á í bili ef marka má fréttir frá Veðurstofu Íslands. Í dag er spáð fremur hægri norðlægri eða breytilegri átt, léttskýjuðu í innsveitum og hita 15 til 22 stig, einna hlýjustu veðri á þessu svæði. Við ströndina verður þó víða þokuloft, einkum í nótt. Fallega veðrið undanfarið kallar litina fram og …
Útboð á skólaakstri
Borgarbyggð auglýsir eftir tilboðum í skólaakstur á einni leið með nemendur við Grunnskólann í Borgarnesi. Um er að ræða eina leið með nemendur af Mýrum og er áætlaður akstur um 85km á dag. Verkið er boðið út til eins árs, það er skólaárið 2008 – 2009, með möguleika á framlengingu í eitt ár. Útboðsgögn fást á skrifstofu Borgarbyggðar, …
Hvaða fólk er þetta?
Á heimasíðu Safnahúss Borgarfjarðar, www.safnahus.is er Skjalasafnið með fastan dálk þar sem leitað er eftir upplýsingum um gamlar myndir í eigu safnsins. Þessi mynd er ein þeirra og er spurt hvaða fólk sé á myndinni. Einu upplýsingarnar sem fylgja myndinni eru að á bakhlið hennar stendur: „tekið við gamla hótelið“og að ljósmyndarinn er úr Vestmannaeyjum. Ekki er vitað hvaða hótel …
Skallagrímsgarður
Til þess að koma fyrir föstu hátíðarsviði í Skallgrímsgarði, eins og því fallega sviði sem var smíðað og hlaðið fyrir 17. júní í sumar, þurfti að fjarlægja yfir 30 greni-, birki- og reynitré. Við þetta myndaðist töluvert skarð í annars gamal gróinn garðinn. Nú er sviðið að fullu risið, búið er að ganga frá gangstíg fyrir aftan það og framkvæmdir …
Skrúðakstur á Ferguson
Á Safnadaginn, sunnudaginn 13. júlí nk. mun Landbúnaðarsafn Íslands efna til skrúðaksturs Ferguson-manna um Andakíl. Á heimasíðu safnsins eru Ferguson-menn eru hvattir til þess að mæta með fáka sína, en lagt verður upp frá hlaði safnsins á Hvanneyri eftir hádegið. Í frétt á síðunni er sérstaklega tekið fram að mikilvægt sé að ökumenn vélanna séu í kæðnaði er svarar til …
Borgarbyggð auglýsir eftir tilboðum
Borgarbyggð óskar eftir tilboðum í eftirfarandi verk: Gata frá Vesturlandsvegi að hesthúsahverfi – yfirborðsfrágangur Hrafnaklettur og Stekkjarholt – malbikun og gangstéttar við Hrafnaklett Göngustígur frá Kvíaholti að Borgarvík – gerð stígs ásamt malbikun Útboðsgögn verða afhent á geisladisk og án endurgjalds í Ráðhúsi Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, á skrifstofutíma, frá og með miðvikudeginum 2. júlí n.k. 1. Gata frá …
Fréttabréf Borgarbyggðar er komið út 30. júní
Fréttabréf Borgarbyggðar verður borið í hús í dag. Fréttabréfið kemur út annan hvern mánuð og er þetta þriðja tölublað ársins 2008. Í fréttabréfinu kennir ýmissa grasa að venju og er nú stútfullt af efni. Það er þó ólíkt fyrri fréttabréfum þar sem þrír af föstu liðum bréfsins eru ekki með í þetta sinn. Þeir eru fréttaritari úr sveitinni, ljóð frá …
Lausaganga hunda bönnuð á ákveðnu svæði í Hítardal
Að beiðni afréttarnefndar Hraunhrepps hefur lausaganga hunda verið bönnuð á tjaldsvæðinu í Hítardal yfir sumartímann þ.e. á milli vatnsins, hraunsins og árinnar. Hundaeigendur á ferðinni um dalinn eru vinsamlegast beðnir um að virða þetta bann. Bannskilti verða sett upp á tveimur áberandi stöðum á svæðinu. Meðfylgjandi myndir eru frá Hítardal. Myndir: Björg Gunnarsdóttir