Lise HanskovSunnudaginn 6. júní verður Horsholm kórinn frá Danmörku á ferð í Reykholti. Kórinn mun syngja með í guðsþjónustu sem hefst kl. 14.00 og kl. 16.00 heldur kórinn tónleika í kirkjunni. Þetta er um 30 manna kór sem syngur bæði kirkjulega tónlist og eins danska söngva, sem flestir þekkja úr Íslenska söngvasafninu. Stjórnandi kórsins er Lise Hanskov sem er einn …
Útifjör við Skorradalsvatn
Björgunarsveitirnar í Borgarfirði, Brák, Ok og Heiðar halda sjómannadaginn hátíðlegan með fjölskylduhátíð við Skoradalsvatn en sjómannadagurinn er næstkomandi sunnudag 6. júní. Björgunarsveitirnar sýna tæki sín, hægt verður að fara í siglingu á vatninu og í ýmsa leiki og fleira verður til gamans gert. Þá mun þyrla landhelgisgæslunnar koma í heimsókn. Meðfylgjandi mynd tók Kristín Jónsdótttir á Útifjöri 2009. Sjá nánar …
Borgarafundur félagsmálaráðherra í kvöld
Skuldastaða heimilanna, aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að létta greiðslubyrði og fyrirhugaðar leiðréttingar á höfuðstóli erlendra bílalána eru á meðal þess sem Árni Páll Árnason, félagsmálaráðherra kynnir á borgarafundi í Mennta og Menningarhúsi Borgarbyggðar, Borgarbraut 54, í kvöld fimmtudaginn 3. júní kl 20.30-22.00. Í upphafi fundar flytur ráðherra stutta kynningu þar sem lausnir á skuldavanda fólks eru settar fram á einfaldan og …
Borgfirðingabók að koma út
Áhugaverð bók um líf, störf og náttúru í Borgarfirði Borgarfjörður_gjBorgfirðingabók, ársrit Sögufélags Borgarfjarðar 2010 fer að koma út. Borgfirðingabók er hlaðin gömlum og nýjum frásögnum og heimildum sem áhugafólk um sögu og þjóðlegan fróðleik má ekki láta framhjá sér fara. Í bókinni eru stuttir og fróðlegir kaflar eftir fjölmarga höfunda, skemmtileg lesning fyrir borgfirðinga og aðra lestrarhesta. Áhugasamir um …
Kennari í upplýsingatækni
Varmalandsskóli auglýsir eftir kennara í upplýsingatækni í 35% starf fyrir næsta skólaár. Umsóknarfrestur er til 13. júní næstkomandi. Upplýsingar um starfið veitir Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir skólastóri Varmalandsskóla, inga@varmaland.is, s:430-1504/8479262.
Útstrikanir á framboðslistum í Borgarbyggð
Skv. lögum um kosningar til sveitarstjórna geta kjósendur breytt nafnaröð á þeim lista sem þeir kjósa eða strikað yfir nafn frambjóðanda ef kjósandinn vill hafna þeim frambjóðanda. Við sveitarstjórnarkosningarnar í Borgarbyggð 29. maí s.l. var nokkuð um að kjósendur nýttu þennan rétt sinn og strikuðu yfir nöfn ákveðinna frambjóðenda eða breyttu röð þeirra. Á A-lista var strikað yfir 15 …
Börn í 100 ár opnuð fyrir sumarið
Á morgun hefst sumaropnun sýningarinnar Börn í 100 ár, fastasýningar Safnahúss. Verður hún opin alla daga frá 13-18 fram til 1. september. Sýningin er hönnuð af Snorra Frey Hilmarssyni leikmyndateiknara og hefur hlotið mikið lof þeirra sem hana hafa séð, ekki síst fyrir frumlegt og óvenjulegt sjónarhorn á sögu Íslands á 20. öld þar sem hún er tengd lífi og …
Dúkkulísa í Logalandi – árshátíð Grunnskóla Borgarfjarðar
Leikhópurinn_áhs Árshátíð unglingadeildar Grunnskóla Borgarfjarðar verður haldin í Logalandi miðvikudaginn 2. júní kl 20.00. Nemendur munu sýna leikritið Dúkkulísa eftir Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur Bachmann í leikstjórn Ásu Hlínar Svavarsdóttur. Dúkkulísa er fremur opinskátt leikverk um unglinga í nútímasamfélagi á Íslandi sem verða að takast á við lífið í hinum ýmsu myndum. Verkið tengist forvarnarverkefni um barneignir unglinga sem m.a. var …
Úrslit sveitarstjórnarkosninganna í Borgarbyggð
Úrslit sveitarstjórnarkosninganna í Borgarbyggð voru þessi: Á kjörskrá voru 2.491 og atkvæði greiddu 1.892 sem er 76% kjörsókn. Atkvæði féllu þannig: A-listi Svartalistans fékk 110 atkvæði og engan mann kjörinn. B-listi Framsóknarflokksins fékk 456 atkvæði og 2 menn kjörna. D-listi Sjálfstæðisflokksins fékk 460 atkvæði og 3 menn kjörna. S-listi Samfylkingarinnar fékk 350 atkvæði og 2 menn kjörna. V-listi …
Fjórir sölustaðir stóðust sígarettuprófið – einn féll
Samstarfshópur um forvarnir í Borgarbyggð stóð í gær fyrir skyndikönnun á sölu á tóbaki til ungmenna undir 18 ára aldri. Unglingar undir lögaldri fóru á fimm staði í Borgarnesi og báðu um sígarettupakka. Í verslun Hyrnunnar, afgreiðslustöðum N1, Shell og Olís var unglingunum neitað um afgreiðslu, en í Samkaup voru sígaretturnar afgreiddar. Enginn þeirra sem vann við tóbaksafgreiðslu var undir …