Nýr samningur um sorphirðu

ágúst 8, 2010
Föstudaginn 6. ágúst síðastliðinn var undirritaður verksamningur milli Akraneskaupstaðar, Borgarbyggðar, Hvalfjarðarsveitar og Skorradalshrepps annars vegar og Íslenska Gámafélagsins ehf. hins vegar, um sorphirðu, rekstur móttökustöðva og ráðstöfun þess sorps sem til fellur. Samningurinn er undirritaður með fyrirvara um endanlega staðfestingu sveitarstjórna.
Samningurinn sem er til fimm ára tekur gildi 1. september næstkomandi og rennur út 31. ágúst 2015. Þó er sú undantekning að samningurinn tekur gildi 1. nóvember næstkomandi í Skorradalshreppi. Þá verður jafnframt hrint í framkvæmd breytingu á núverandi sorphirðukerfi. Tekið verður upp 2ja tunnu kerfi þar sem gert er ráð fyrir aukinni flokkun sorps frá því sem nú er.
Kynning á hinu breytta fyrirkomulagi mun fara fram í ágúst og september með kynningarfundum og útgáfu handbókar sem dreift verður til íbúa.
Kynningarfundirnir verða auglýstir síðar.
 
 

Share: