Hópurinn sem tók þátt í stærðfræðikeppninniLaugardaginn 2. apríl voru kunngerð úrslit í stærðfræðikeppninni sem Fjölbrautarskóli Vesturlands á Akranesi heldur árlega fyrir nemendur í 8. – 10. bekk. Krakkarnir úr Borgarbyggð stóðu sig með mikilli prýði. Í fyrsta sæti í keppninni meðal 10. bekkinga varð Björk Lárusdóttir nemandi á Kleppjárnsreykjum en Þorkell Már Einarsson frá Grunnskólanum í Borgarnesi í öðru sæti. …
Árshátíð Grunnskólans í Borgarnesi 2011
Árshátíð Grunnskólans í Borgarnesi verður haldin föstudaginn 8. apríl í Hjálmakletti, Mennta- og menningarhúsi Borgarbyggðar. Sýningar verða tvær kl. 16:30 og 18:30. Ævintýri er þema árshátíðarinnar í ár. Ævintýrum verða gerð skil á fjölbreytilegan hátt af nemendum úr öllum bekkjum skólans. Aðgangseyrir er kr. 500.- fyrir 16 ára og eldri. Frítt fyrir 15 ára og yngri. Ekki verður posi á …
Kjördeildir í Borgarbyggð 2011-
AUGLÝSING UM SKIPAN Í KJÖRDEILDIR Í BORGARBYGGÐ Við þjóðaratkvæðagreiðslu laugardaginn 9. apríl 2011 er skipan í kjördeildir í Borgarbyggð sem hér segir: Borgarneskjördeild í Hjálmakletti (menntaskólanum) í Borgarnesi. Þar kjósa íbúar á svæðinu milli Langár og Gljúfurár. Kjörfundur hefst kl. 9,oo og lýkur kl. 22,oo Lindartungukjördeild í félagsheimilinu Lindartungu Þar kjósa íbúar í fyrrum Kolbeinsstaðahreppi. Kjörfundur hefst kl. 10,oo og …
Blóðbankabíllinn í Borgarnesi
Blóðbankabíllinn verður í Borgarnesi við Hyrnuna, þriðjudaginn 5. apríl næstkomandi kl. 10.00 – 17.00. Allir eru velkomnir, jafnt nýir sem vanir blóðgjafar og Blóðbankinn vonast til að sem flestir sjái sér fært að koma og gefa blóð. Að jafnaði þarf bankinn um 70 blóðgjafa á dag. Blóðgjöf er lífgjöf.
Nýr gæludýraeftirlitsmaður hefur störf
Nýverið var auglýst starf gæludýraeftirlitsmanns norðan Hvítár. Sjö umsóknir bárust um starfið og voru allir umsækjendurnir teknir í viðtal. Ákveðið hefur verið að ráða Huldu Geirsdóttur í Borgarnesi og hefur hún störf í næstu viku. Sigurður Halldórsson sem verið hefur eftirlitsmaður fyrir alla Borgarbyggð sinnir nú bara svæðinu sunnan Hvítár. Hér má sjá frekari upplýsingar um gæludýraeftirlitið. …
Matjurtagarðar 2011
Íbúum Borgarbyggðar gefst nú kostur á að leigja sér matjurtagarða fyrir sumarið. Garðarnir eru í landi Gróðrastöðvarinnar Gleymérei í Borgarnesi. Boðið er upp á tvær stærðir garða, 15 m2 á kr. 3.950 og 30 m2 á kr. 5.600. Áhugasömum er bent á að hafa samband við Björgu Gunnarsdóttur, umhverfisfulltrúa í síma 437 1100 eða senda póst á netfangið bjorg@borgarbyggd.s. Auglýsingu …
Leiklistin blómstrar í Borgarbyggð
Um þessar mundir eru margar skemmtilegar leiksýningar í gangi í Borgarbyggð og glæsileg Brúðuleikhúshátið í Borgarnesi nú um helgina. Ungmennafélag Reykdæla verður með tvær aukasýningar á „Með vífið í lúkunum“ í Logandi, fimmtu- og föstudagskvöld. Leikdeild Skallagríms verður með hádegissýningu á Ferðinni á heimsenda í Lyngbrekku á laugardag. Mr. Skallagrímsson birtist í Landnámssetri á föstudagskvöld og Leiklistarfélag MB …
Aðgerðaráætlun Orkuveitu Reykjavíkur
Frá fundi ORÍ gær var kynnt aðgerðaráætlun sem á að tryggja rekstur Orkuveitu Reykjavíkur til frambúðar.Í áætluninni er gert ráð fyrir að verulega verði dregið úr framkvæmdum og viðhaldsverkefnum, eignir verði seldar, dregið verði úr rekstarkostnaði, gjaldskrár hækki og eigendur láni fyrirtækinu fjármagn. Borgarbyggð er einn eigenda fyrirtækisins og er eignarhlutur sveitarfélagsins 0.93%. Ljóst er að þættir í aðgerðaáætlunin munu …
Úthlutað úr Menningarsjóði Borgarbyggðar 2011
Stjórn menningarsjóðs Borgarbyggðar úthlutaði úr sjóðnum á fundi sínum þann 14. mars síðastliðinn. Við skoðun á umsóknum var lögð áhersla á grasrótarstarf í héraði. Umsóknir voru alls 32 talsins og hljóðuðu upp á 13 -15 milljónir. Úthlutað var kr. 2.000.000 til 20 verkefna. Eftirtaldir hlutu styrk úr sjóðnum: Björgunarsveitin Brák Dagskrá á Sjómannadag 100.000 Danshópurinn Sporið Varðveisla og kynning þjóðdansa …
Auglýsing um kjörskrá
Kjörskrá Borgarbyggðar vegna þjóðaratkvæðagreiðslu sem fram fer 9. apríl 2011 liggur frammi, á afgreiðslutíma, á skrifstofu Borgarbyggðar að Borgarbraut 14, frá og með 30. mars til og með 8. apríl. Skrifstofustjóri