Hundur í óskilum 08-25

Svartur og hvítur Border Collie hundur hefur verið í vörslu gæludýraeftirlits Borgarbyggðar frá því í síðustu viku. Hann var handsamaður fyrir utan Hótel Borgarnes. Hann er ómerktur, hvorki með ól né örmerki.   Telji sig einhver eiga þennan hund er sá vinsamlegast beðinn að hafa samband við skrifstofu Borgarbyggðar í síma 433-7100 og eftir lokun skiptiborðs í síma 868-0907.  

Starfsfólk íþróttamiðstöðvar í námsferð

Starfsfólk íþróttamiðstöðvarinnar í Borgarnesi hefur fengið styrk úr mannauðssjóði Kjalar til að fara í náms- og kynningarferð. Farið verður til í fjögurra daga ferð til Berlínar og lagt af stað fimmtudaginn 29. ágúst. Þar munu þau skoða sundlaugar, fjölnota íþróttahús og ólympíuleikvang. Veglegur styrkur fékkst úr sjóðnum til ferðarinnar en Kjölur er stéttarfélag starfsmanna íþróttamiðstöðvarinnar. Íþróttahúsið verður opið eins og …

Sveitarstjórnir funda á Arnarvatnsheiði

Sveitarstjórnir Borgarbyggðar og Húnaþings vestra komu saman til fundar í skálanum í Álftárkróki á Arnvatnsheiði nýverið. Einnig sat Snorri Jóhannesson frá Sjálfseignarstofnunni um Arnarvatnsheiði fundinn. Á fundinum voru rædd ýmis sameiginleg hagsmunamál sem snúa að Arnarvatnsheiði. Má þar nefna samgöngur, skipulagsmál, veiði og ferðaþjónustu, landbúnaðarmál og þjóðlendumál. Fundurinn var afar gagnlegur og voru aðilar sammála um að skipa hóp sem …

Fjallskilaseðlar 2013

Fjallskilaseðlar frá afrétta- og fjallskilanefndum verða eins og í fyrra aðgengilegir á heimasíðunni. Þeir verða settir inn eftir því sem þeir berast. Til að nálgast seðlana er farið inn á starfsemi undir bláu valstikunni á forsíðu heimasíðunnar. Þar til hliðar er farið í landbúnaður og síðan fjallskilasjóðir. Á þeirri síðu er síðan farið inn á fjallskilaseðlar 2013. Þá má einnig …

Afsteypa af Hafmeyjunni í Skallagrímsgarði

Fimmtudaginn 15. ágúst var 100. fundur sveitarstjórnar Borgarbyggðar haldinn í Reykholti. Þar lagði Björn Bjarki Þorsteinsson fram eftirfarandi tillögu: Í tilefni af 100. fundi sveitarstjórnar Borgarbyggðar sem haldinn er í Reykholti 15. ágúst 2013 er lagt til að sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykki að láta gera afsteypu af listaverki eftir Guðmund Einarsson frá Miðdal. Afsteypan yrði síðan sett upp í Skallagrímsgarði næsta …

Það er leikur að læra….

Grunnskóli Borgarfjarðar verður settur fimmtudaginn 22. ágúst næstkomandi. Á Varmalandi er skólasetning kl. 10.00, á Hvanneyri kl. 12.00 og skólinn á Kleppjaárnsreykjum verður settur kl. 14.00. Kennsla hefst samkvæmt stundarskrá föstudaginn 23. ágúst. Skóladagatal Grunnskóla Borgarfjarðar.   Skólasetning Grunnskólans í Borgarnesi verður í íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi mánudaginn 26. ágúst kl. 13.00. Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 27. ágúst. Skóladagatal Grunnskólans …

Tónlistarskólinn getur bætt við nemendum

Nú í vikunni hefst vetrarstarf Tónlistarskóla Borgarfjarðar. Kennarar hitta nemendur og raða niður á tíma fimmutdaginn 22. ágúst og föstudaginn 23. ágúst næstkomandi og kennsla hefst mánudaginn 26. ágúst. Enn er hægt er að bæta við nokkrum nemendum í gítar og á blásturshljóðfæri. Einnig er velkomið að sækja um á önnur hljóðfæri. Áhugasamir hafi samband við skólastjóra í síma 437 …

Veljum í vinningslið!

Borgarbyggð auglýsir eftir áhugasömum íbúum til að taka þátt í Útsvari næsta vetur. Þeir sem hafa áhuga á að komast í lið Borgarbyggðar eru beðnir um að senda tölvupóst til fræðslustjóra á netfangið asthildur@borgarbyggd.is sem allra allra fyrst. Einnig má gjarnan senda tilnefningar á sama netfang.  

Frá Tómstundaskólanum í Borgarnesi

Tómstundaskólinn í Borgarnesi verður opinn fimmtudaginn 22. ágúst og föstudaginn 23. ágúst þrátt fyrir að setningu grunnskólans hafi verið frestað til 26. ágúst. Tómstundaskólinn verður opinn nemendum í 1.-4. bekk frá kl. 8.00-16.00, báða dagana. Skrá þarf börnin annað hvort hjá forstöðukonu, Jónínu Heiðarsdóttur á netfangið joninahe@grunnborg.is eða hjá ritara skólans Siggu Helgu, í síma 437-1229. Taka þarf fram hvaða …

100. fundur sveitarstjórnar

Fimmtudaginn 15. ágúst verður haldinn 100. fundur sveitarstjórnar Borgarbyggðar. Af því tilefni verður fundurinn haldinn í hátíðasal fv. héraðsskólans í Reykholti.   Dagskrá fundarins er þessi: 1. Fundargerð sveitarstjórnar 13.06. ( 99 ) 2. Fundargerðir byggðarráðs 20.06., 27.06., 04.07., 18.07., 01.08. og 08.08 ( 273, 274, 275, 276, 277, 278 ) 3. Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 05.07. ( 33 ) …