Vetrardagskrá íþróttamiðstöðvarinnar í Borgarnesi er komin út. Smellið hér til að sjá vetrardagskrána.
Ljósastaurar komnir við Árberg
Lokið hefur verið við uppsetningu ljósastaura við Árberg í Reykholtsdal. Settir voru þrír staurar frá Árbergsgötunni að þjóðvegi en göngustígur liggur þaðan, meðfram þjóðvegi í gegnum Kleppjárnsreykjahverfi. Nokkrir nemendur Grunnskóla Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum ganga frá Árbergi í skólann og mun nú öryggi þeirra og annarra gangandi vegfarenda aukast til muna. Starfsmenn Rarik sáu um uppsetningu stauranna en Einar S. Traustason …
Björgun sels
Sel var giftursamlega bjargað, af Margréti Katrínu Guðnadóttur dýrlalækni, fimm meðlimum Björgunarsveitarinnar Brák og HSS verktak, úr sjálfheldu í dag eftir sólarhringsdvöl í Borgarvogi. Hann var dreginn að landi og þá fluttur með gröfu gegnum Borgarnes til sjávar við enda Brákareyjar. Þar var honum gefinn fiskur sem hann reyndar fúlsaði við. Hann synti síðan með hraði út á haf og …
Jóga fyrir eldri borgara og öryrkja
Ákveðið hefur verið að gera tilraun fram að áramótum og bjóða upp á léttar jógaæfingar í félagsstarfi aldraðra og öryrkja í Borgarnesi. Tímarnir verða á fimmtudögum kl. 13.00 – 14.00 í salnum á efstu hæðinni í blokkinni á Borgarbraut 65a. Fyrsti tími verður 2. október nk. Fólk mætir í venjulegum fatnaði, en gæta skal þess þó að hann sé þægilegur …
Umhverfisviðurkenningar Borgarbyggðar árið 2014
Síðastliðinn sunnudag, þann 14. september, voru umhverfisviðurkenningar Borgarbyggðar fyrir árið 2014 veittar, að viðstöddu fjölmenni, að Arnarholti í Stafholtstungum. Athöfnin var í samstarfi við Skógræktarfélag Borgarfjarðar og Skógræktarfélag Íslans þar sem verið var einnig að útnefna ,,Tré ársins“. Þetta var einnig notað sem tækifæri til að halda upp á ,,Dag íslenskrar náttúru“ sem er 16. september árlega. Sjá dagskrá viðburðarins …
Framkvæmdagleði á Hvanneyri
Miklar framkvæmdir hafa verið á Hvanneyri undanfarið, bæði við endurbætur á götum og frágang lóða. Ný klæðning hefur verið lögð á Hvanneyrargötu þ.e. frá hringtorgi að Ásgarði. Þá hafa Sindri Arnfjörð og hans menn fegrað og snyrt lóð grunnskólans á staðnum en þar er nú búið að helluleggja og setja upp …
Vetraropnun í Safnahúsi Borgarfjarðar
Sumarið hefur verið líflegt í Safnahúsi Borgarfjarðar, nóg um að vera og margir erlendir ferðamenn hafa skoðað sýningarnar þrjár í húsinu: Börn í 100 ár, Ævintýri fuglanna og Landið sem þér er gefið – minningarsýningu um Guðmund Böðvarsson skáld. Sýningarnar verða opnar um næstu helgi en annars hefur vetraropnun tekið gildi í Safnahúsi. Í vetur verður opið alla virka daga …
Liðveisla – skemmtilegt starf
Borgarbyggð leitar að skemmtilegu, ungu, umburðarlyndu en sæmilega ákveðnu fólki til að sinna liðveislu fyrir börn og/eða ungmenni með fötlun. Í liðveislu felst fyrst og fremst stuðningur til að njóta tómstunda fyrir utan heimilið. Nánari upplýsingar hjá Hjördísi Hjartardóttur s: 4337100, netfang hjordis@borgarbyggd.is
Skemmtileg örsýning í Safnahúsi
Skemmtileg örsýning hefur verið sett upp í Safnahúsi Borgarfjarðar, í samvinnu skjala- og bókasafns. Til sýnis eru bókamerki frá ýmsum tímum sem mörg hver hafa fundist í safngögnum.Sum voru fjöldaframleidd og bera með sér auglýsingar eða skilaboð á einhvern hátt en önnur eru persónuleg hönnun. Öll eiga þau sameiginlegt að gegna því hlutverki að merkja þann stað í bókinni þegar …
Áttu tíma aflögu?
Okkur hjá Borgarbyggð bráðvantar aðila til að sinna heimilishjálp vestast í sveitarfélaginu í nokkra klukkutíma á viku. Launin munu ekki ekki gera þér kleift að kaupa banka eða flugfélag, jafnvel þótt þú farir vel með, en kannski er gaman að kynnast öðru fólki og láta gott af sér leiða. …