Þann 1. nóvember næstkomandi, frá kl. 10.00 til kl. 14.00, verður opið hús hjá Heilsugæslunni í Borgarnesi. Áhersla verður lögð á lungnasjúkdóma og háþrýsting Fyrirlestrar verða sem hér segir: Lungnasjúkdómar kl. 10.30 og kl.12.30 Háþrýstingur kl. 11.30 og kl. 13.30 Boðið verður upp á blóðþrýstingsmælingar og öndunarpróf! Bjóðum íbúa umdæmis HVE Borgarnesi velkomna til okkar. Bændur og reykingafólk sérstaklega hvatt …
Skipulagsauglýsing – lýsing á deiliskipulagi, Runkás
Runkás á Mýrum, lýsing á deiliskipulagi Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti á fundi sínum þann 28. maí 2014 að auglýsa lýsingu vegna nýs deiliskipulags fyrir Runkás á Mýrum. Um er að ræða breytta landnokun samkvæmt uppdrætti og greinargerð dags. 20. október 2014. Helstu breytingar eru að búnar verða til 6 lóðir þar af tvær með byggingarreit fyrir frístundahús. Lýsingin liggur frammi …
Snillingafundur – foreldrar barna með ADHD/ADD
Fundur verður hjá Snillingaforeldrum mánudaginn 27. október kl. 20.00 í Grunnskólanum í Borgarnesi. Snillingaforeldrar er félagsskapur foreldra barna með ADHD/ADD. Markmið Snillingaforeldra er að foreldrar geti deilt reynslu sinni, stutt hvert annað í uppeldishlutverkinu og jafnvel fengið og deilt áfram fræðslu um líðan og hegðun barna með ADHD/ADD og æskileg viðbrögð þeirra sem mest eru með börnunum s.s. foreldra og …
Skipulagsauglýsing – Litla Hraun
Auglýsing um deiliskipulagstillögu ásamt umhverfisskýrslu vegna Litla-Hrauns, Borgarbyggð Borgarbyggð auglýsir hér með tillögu að deiliskipulagi fyrir hluta jarðarinnar Litla-Hrauns í Borgarbyggð sbr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og umhverfisskýrslu sbr. 7. gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006. Tilefni deiliskipulagsgerðar eru áform um uppbyggingu á jörðinni Litla-Hrauni sem er gamalt lögbýli en verið hefur í eyði. Gert er ráð fyrir …
Göngubrú við Suðurneskletta
Við Suðurneskletta í Borgarnesi er búið að byggja þessa gullfallegu göngubrú. Myndirnar tók Jökull Helgason.
Þakkir frá Rauða krossinum í Borgarfirði
Opnun fjöldahjálparstöðva – Eldað fyrir Ísland Okkur í Rauða krossinum í Borgarfirði langar til að þakka öllum þeim sem komu að æfingunni við opnun fjöldahjálparstöðvar sl. sunnudag. Rúmlega 300 íbúar Borgarbyggðar, sumarhúsagestir og aðrir gestir gerðu sér ferð í eina af þremur fjöldahjálparstöðvum sem við opnuðum, á Bifröst, Hvanneyri og í Borgarnesi, skráðu sig inn, þáðu súpu og skráðu sig …
Blóðbankabíllinn í Borgarnesi í dag
Blóðbankabíllinn verður við N1 í Borgarnesi við í dag, þriðjudaginn 21. október til kl. 17.00. Allir eru velkomnir og hvetur Blóðbankinn Borgnesinga og nærsveitunga til að fjölmenna í Borgarnes og gefa blóð. Munið að blóðgjöf er lífgjöf.
Afmælisfjör og ný skólanámskrá í Uglukletti
Í gær héldu krakkarnir á Uglukletti upp á sjö ára afmæli skólans. Dagurinn hófst á afmælismorgunverði og skrúðgöngu um húsið, sögustund og afmælisköku. Ekta afmælismatur var á borðum í hádeginu og gestum og gangandi var svo boðið í vöfflur. Kolfinna sveitarstjóri og Ásthildur fræðslustjóri þáðu að að sjálfsögðu boð um að koma og heilsa upp á krakkana og kynna sér …
Skipulagsauglýsing – Ölvaldsstaðir
Skipulagslýsing vegna breytinga á aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022, Ölvaldsstaðir Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti á fundi sínum þann 6. júní 2014 að auglýsa lýsingu vegna fyrirhugaðra breytinga á aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022. Um er að ræða breytta landnokun við Ölvaldsstaði samkvæmt uppdrætti og greinargerð dagssettri 26. júni 2014. Lýsingin liggur frammi í Ráðhúsi Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, 310 Borgarnesi frá 20. október 2014 til …
Borgfirsk matarmenning – fyrirlestur í Snorrastofu
Guðrún Hallgrímsdóttir matvælaverkfræðingur flytur erindi í bókhlöðu Snorrastofu, þriðjudaginn 21. október kl. 20.30. Guðrún leitar fanga í sögu matvælaframleiðslu í landbúnaðarhéruðum okkar og hvernig nútíminn getur hagnýtt sér gamlar hugmyndir og reynslu í þeim efnum. Í kaffihléi sýna borgfirskir matgæðingar óvæntar krásir sínar og bjóða gestum að bragða á. Aðgangseyrir er kr. 500. Umræður og fyrirspurnir Að loknu kaffihléi verður …