Lilja Björg og Viktor Ingi frá skrifstofu Borgarbyggðar kynntu fyrir nemendum 8., 9.og 10.bekkjar, hönnunarverkefni um nafn og persónu snjallmennis Borgarbyggðar. Allir nemendur á unglingastigi í GB og GBF, auk nemenda í MB, geta tekið þátt í þessu skemmtilega verkefni, fundið nafn og útlit sem gæti hentað snjallmenninu. Markaðsstofa verður svo fengin til að hanna vinningstillöguna og auðvitað fær höfundurinn verðlaun.
