Björgunarsveitin Brák kom í heimsókn

Í dag kom Björgunarsveitin Brák færandi hendi og gaf yngsta stigi grunnskólans fallegan fyrstu hjálpar kassa. “Markmiðið með Barnakassanum er að bjóða upp á skemmtilega og líflega hönnun sem höfðar til barna og sáraumbúðir sem eru lagaðar að líkamsstærð barna svo að þær trufli ekki eðlilegar hreyfingu, séu þægilegar í notkun og stuðli að því að sárin grói fyrr” Kassinn …

Gjöf frá Kvenfélagi Borgarness

Nú á dögunum fóru þroskaþjálfarar grunnskólans í Borgarnesi og keyptu spil og námsgögn fyrir peningana sem Kvenfélag Borgarness gaf í vor. Við viljum þakka Kvenfélaginu kærlega fyrir, gjöfin mun koma að góðum notum í þeirra starfi með börnum.    

Ævar Þór rithöfundur

Í dag, föstudaginn 9. okt, kom Ævar Þór Benediktsson og kynnti nýju bókina sína Teiknimyndaránið. Í stuttu máli fjallar bókin um 12 ára gamlan strák sem ákveður að fremja svakalegasta rán íslandssögunnar þegar hann kemst að því að besti vinur hans er að fara að flytja af landi brott. Bókin er vægast sagt stuðbók með stórt hjarta. Það voru nemendur …

Lestrarratleikur

Af tilefni bókasafnsdagsins, sem var í lok september, bauð bókasafnið í grunnskólanum í Borgarnesi upp á lestrarratleik. Alls tóku 136 nemendur þátt. Dregið var úr lausnum og fékk einn nemandi úr hverjum árgangi bókasafnspassa. Passann má nýta til að vera á bókasafninu í einar frímínútur í samráði við umsjónarkennara

Pourquoi- Pas?

Í tilefni þess að 90 ár eru liðin frá hinu hörmulega strandi rannsóknarskipsins Pourquoi Pas? Tóku nemendur Grunnskólans í Borgarnesi þátt í að minnast þessa sögulega atburðar. Nemendur í 5.-7.bekk og 9.bekk kynntu sér sögu skipsins og unnu fjölbreytt verk í myndmennt út frá henni. Úr varð sýning með stórum myndverkum, dúkristum og máluðum krukkum þar sem nemendur túlkuðu söguna …

Miðstigsleikar

Miðstigsleikar fóru fram í Borgarnesi fimmtudaginn 17. september og var sannkölluð íþróttaveisla hjá nemendum miðstigs. Keppt var í kúluvarpi, sundi, fótbolta og hlaupi, og tóku nemendur frá fjórum skólum þátt: Grunnskólanum í Borgarnesi, Grunnskóla Borgarfjarðar, Heiðarskóla og Auðarskóla. Leikarnir voru haldnir við frábærar aðstæður en Hlaðan, nýja íþróttahúsið í Borgarnesi, var nýtt í fyrsta sinn á miðstigsleikum. Mikil ánægja var …

Treyjudagurinn

Í dag tóku nemendur og starfsfólk skólans þátt í Treyjudeginum og mættu í íþróttatreyjum til að sýna samstöðu með börnum sem greinst hafa með krabbamein og fjölskyldum þeirra. Treyjudagurinn er táknrænn dagur þar sem við minnumst þess að við erum öll í sama liði. Með því að klæðast treyju sýnum við stuðning, samkennd og samhug með þeim börnum sem þurfa …

Óskilamunir

Stjórnendur Grunnskólans í Borgarnesi eru komnir til starfa og undirbúningur fyrir komandi skólaár er hafinn. Við viljum vekja athygli á að talsvert magn óskilamuna frá síðasta skólaári bíður eigenda sinna. Hægt verður að vitja óskilamuna í anddyri yngsta stigs alla næstu viku. Við hvetjum nemendur og forráðamenn til að koma við og athuga hvort einhverjir munir leynist þar.  

Uppbygging sjálfsaga – uppeldi til ábyrgðar. Námsferð kennara.

        10. – 12.júní sl. sótti starfsfólk Grunnskólans í Borgarnesi námskeið í Uppeldi til ábyrgðar (e. Restituion).  Námskeiðið var haldið íBrighton.  Meðal fyrirlesara þar voru Joel Shimoji, Elín Yngvadóttir og Heather Campbell.  Það voru ríflega 80 manns víða af landinu sem sóttu námskeiðin.  Ferðin var öll hin ánægjulegasta.  Námskeiðin sérlega vel heppnuð og leiðbeinendur lögðu mikið upp …

Til hamingju með daginn!

Mánudaginn 8. júní fóru fram skólaslit Grunnskólans í Borgarnesi við hátíðlega og gleðilega athöfn. Dagskráin hófst kl. 10:30 með skrúðgöngu nemenda og starfsfólks í fylgd lögreglu niður í Skallagrímsgarð. Þar tóku nemendur þátt í fjölbreyttum og skemmtilegum leikjum og nutu samverunnar. Að leikjum loknum var nemendum og starfsfólki boðið upp á pylsur áður en formleg dagskrá hófst. Þar voru flutt …