
10. – 12.júní sl. sótti starfsfólk Grunnskólans í Borgarnesi námskeið í Uppeldi til ábyrgðar (e. Restituion). Námskeiðið var haldið íBrighton. Meðal fyrirlesara þar voru Joel Shimoji, Elín Yngvadóttir og Heather Campbell. Það voru ríflega 80 manns víða af landinu sem sóttu námskeiðin. Ferðin var öll hin ánægjulegasta. Námskeiðin sérlega vel heppnuð og leiðbeinendur lögðu mikið upp úr verklegum æfingum í bland við fræðin. Það gafst vel. Hópefli er stór hlutur af ferð af þessum toga, hópurinn okkar fór meðal annars í bráðskemmtilega matarupplifun og karaoke, þar sem allir tóku þátt, auk ýmissa smærri hópeflisviðburða. Áherslan var á að bæta í þekkingarbankann og að njóta lífsins í skemmtilegum félagsskap. Starfsmenn nýttu sína einstaklingsstyrki frá stéttarfélögum auk þess sem Borgarbyggð styrkti hópinn um hluta af ferðakostnaði á flugvöllinn.
Hugmyndafræðin uppeldri til ábyrgðar hefur verið grunnstefið í starfi Grunnskólans í Borgarnesi undanfarna áratugi. Eins og hjá um það bil 100 menntastofnunum á Íslandi, eins og sjá má á heimasíðu félagsins Uppbyggingar https://uppbygging.is/ Starfsfólk héðan hefur sótt námskeið víða um land og erlendis, auk þess sem fyrirlesarar hafa heimsótt okkur. Í okkar starfsmannahópi er góður námskeiðshaldari sem uppfræðir nýja starfsmenn á hverju hausti, auk þess sem hún hefur kennt víðar.
Upphaflega er hugmyndafræðin frá Kanada, sett fram af kennaranum Diane Gossen, en hún byggir á kenningum Williams Glasser, sem hún starfaði með í mörg ár. Inntakið í Uppeldi til ábyrgðar er að nemendur læri að tileinka sér sjálfsstjórn, þeir læri að þekkja sínar grunnþarfir og viðbrögð. Unnið er samkvæmt ákveðnum ferlum, þar sem samtalstækni skipar ákveðinn sess. Maður stjórnar engum nema sjálfum sér, og ber ábyrgð á því sem maður gerir. Virðing fyrir sjálfum sér og þeim sem maður umgengst er áhrifamikill þáttur. Með Uppeldi til ábyrgðar að leiðarljósi stuðlum við að því að nemendur okkar tileinki sér sjálfstæði, ábyrgð virðingu og jákvæð samskipti. Sem kristallast einmitt í einkunnarorðum skólans okkar.