Föstudaginn 14. febrúar sl. fór stór hópur úr unglingadeild í stærðfræðikeppni FVA á Akranesi. Við erum afar ánægð með okkar nemendur, en frá okkur tóku 44 þátt.
Þeir nemendur sem voru í efstu tíu sætunum fengu boð á verðlaunaafhendingu sl. laugardag og áttum við þar fjóra fulltrúa í 8.bekk, tvo í 9.bekk og fjóra í 10.bekk.
Af þessu krökkum áttum við þrjá fulltrúa í efstu þremur sætunum, þá Adam Franciszek Drózdz í 10.bekk sem hafnaði í öðru sæti, Ferdinand August Knappe í 8. bekk einnig í öðru sæti og Sebastian Gísla Mathiasen í þriðja sæti.