Hin árlega söngvarakeppni Grunnskóla Borgarfjarðar var haldin í nýja matsalnum á Kleppjárnsreykjum þann 28.janúar s.l.
Það eru nemendur í 4.-10.bekk sem fá að keppa og að þessu sinni tóku 23 nemendur þátt í 17 atriðum. Guðjón Guðmundssson sá að vanda um allt utanumhald og skipulag.
Dagskráin var fjölbreytt og mikill metnaður lagður í allan flutninginn og dómararnir því ekki öfundsverðir af sínu hlutverki.
Niðurstaða þeirra varð sú að Steinar Orri Hermannsson bar sigur úr býtum, Bergdís Ingunn Einarsdóttir var í öðru sæti og þær Sessejja Narfadóttir og Helga Laufey Hermannsdótir deildu þriðja sætinu.
Samkoman var vel sótt og hafði nemendaráðið skreytt salinn smekklega og sá að auki um sölu á veitingum í hléinu.
Þetta er skemmtileg hefð í skólastarfinu og lífgar verulega uppá í svartasta skammdeginu.

