Upprennandi þingmenn á Varmalandi

Nemendur í 2.-4. bekk í Varmalandsdeild Grunnskóla Borgarfjarðar fengu nýverið kynningu á lýðræði í verki þegar þeir unnu skemmtilegt og fræðandi verkefni í tengslum við komandi Alþingiskostningar. Fyrst var nemendum gefin stutt kynning á starfsemi Alþingis og í kjölfarið var rætt um hlutverk þess og mikilvægi. Að því loknu var nemendum skipt í hópa og fengu þeir það verkefni að …

Barnaþing í Þinghamri – GBF Réttindaskóli Unicef

Barnaþing Grunnskóla Borgarfjarðar var haldið í Þinghamri á Varmalandi föstudaginn 22.nóvember.Að þessu sinni fékk skólinn afhenta viðurkenningu sem Réttindaskóli Unicef við hátíðlega athöfn. Réttindaráðið, sem er skipað nemendum úr öllum námshópum í skólanum hefur unnið ötullega að því að ná þessu markmiði undir dyggri leiðsögn kennaranna Elísabetar  og Önnu Dísar.  Á þinginu unnu nemendur í hópum þvert á aldur og …

Nemendur lesa fyrir eldri borgara í Brún

Miðvikudaginn 2o. nóvember fóru sjö nemendur frá Grunnskóla Borgarfjarðar í Brún til að lesa þar fyrir eldri borgar á samkomu hjá þeim. Það er nokkuð löng hefð fyrir því að nemendur fari og lesi fyrir eldri borgara í tengslum við dag íslenskrar tungu. Á staðinn mættu þrír nemendur úr 7. bekk á Kleppjárnsreykjum, tveir úr 5. bekk á Hvanneyri og …

Baráttu dagur gegn einelti

Þann 8. nóvember ár hvert er baráttudagur gegn einelti. Þann dag hittast nemendur úr leik- og grunnskólanum á Hvanneyri og styrkja vinaböndin. Allir árgangar eiga vinaárgang sem hittist. Árgangar fylgjast að þar til skólahópur byrjar í grunnskóla og tekur þá vinahópur viðkomandi árgangs á móti þeim og býður nemendur velkomna í skólann. Skemmtileg hefð sem byggir á vináttu og náungakærleik. 

List fyrir alla og dans

Miðvikudaginn 6. nóvember kom allt yngsta stig GBF saman á Varmalandi. Nemendur gerðust DjassGeggjarar af bestu gerð er þeir horðu og tók um þátt í Jassleikhúsi með djasstríói á vegum List fyrir alla. Við ákváðum að nýta tækifærið og fá Jón Pétur til að stjórna dansi fyrir allt yngstastigið. Það gekk vonum framar og dönsuðu tæplega 80 börn á Varmalandi …

Fjölgreindarleikar á Varmalandi

Uppbrotsdagur með áherslu á styrkleika Á Varmalandi var fimmtudagurinn 14. nóvember tileinkaður fjölbreytileika og sköpun þegar nemendur tóku þátt í fjölgreindaleikum Gardners. Kenning Gardners um fjölgreind leggur áherslu á að einstaklingar læri á mismunandi vegu og búi yfir ólíkum styrkleikum, hvort sem um rýmisgreind, tónlistargreind og fleira.  Til að fagna þessum fjölbreytileika var nemendum skipt í hópa þvert á bekki, …

Dansvika með Jóni Pétri

Vikuna 4.-8.nóvember voru allir nemendur Grunnskóla Borgarfjarðar í dansi hjá Jóni Pétri eina klukkustund á dag. Kenndi hann 2-3 árgöngum saman og virkjaði allan hópinn í félagsfærni, leik og dans. Í síðasta tíma vikunnar tók hann svo alla nemendur hverrar starfsstöðvar saman og blandaði þeim í dans og marseringar eftir kúnstarinnar reglum. Jón Pétur var mjög ánægður með nemendahópinn og …

Leikskólinn Hraunborg fluttur á Varmaland

Mikil gleði ríkir á Varmalandi þar sem leikskólinn Hraunborg hefur nú hafið starfsemi sína á Varmalandi en var áður á Bifröst. Aðstaðan er til fyrirmyndar eftir að verktakar luku störfum. Leikskólinn er kærkomin viðbót við námsumhverfi grunnskólans og hefur þegar aukið fjölbreytileika og líf í skólanum, sérstaklega á kaffistofu starfsmanna.  Kennarar grunnskólans hafa sýnt mikinn áhuga á starfsemi leikskólans og …

Skipulagsdagur mánudaginn 11. nóvember

Mánudaginn 11. nóvember er skipulagsdagur í Grunnskóla Borgarfjarðar og því ekki skóli hjá nemendum. Starfsmenn skólans nýta þennan dag í að kynna sér skólastarf í skólum í Reykjanesbæ og í Reykjavík.