Nemendur í gervi ýmissa kynjavera mættu í skólann á Kleppjárnsreykjum á öskudaginn. Hefðbundið skólastarf var að að mestu fram að hádegi en eftir hádegið var slegið upp balli í íþróttasalnum. Kötturinn var sleginn úr tunninni og nemendur úr nemendaráði stýrðu leikjum og dansi af mikilli röggsemi. Virkilega vel að þessu staðið hjá nemendaráðinu sem var fáliðað því helmingur þess var í námsferð í Finnlandi.

