Opið hús á Kleppjárnsreykjum

Þann 7.maí var opið hús á Kleppjárnsreykjum eins og öðrum starfsstöðvum skólans. Flestir nemendur 7.-10.bekkja voru fjarri góðu gamni því á sama tíma kepptu nemendur skólans í Skólahreysti.

Nemendur yngri bekkjanna stóðu sig með stakri prýði við móttöku aðstandenda og leiddu þá um skólann og útikennslusvæðið. Í boði var að gera listaverk í myndmenntinni, spila og leysa ýmsar þrautir, hlusta á hljóðfæraleik, baka klatta úti og skoða byggingu sem nemendur eru að vinna að úti á Læknistúni. 

Allir fengu afhent bingóspjald sem leiddi þá á þá staði og viðburði sem i boði voru og var gerður góður rómur að því fyrirkomulagi.

Góð mæting gerði daginn eftirminnilegan og virtust nemendur og gestirnir njóta samverunnar.