Í marsbyrjun var nýja eldhúsið á Kleppjárnsreykjum tekið í notkun og matsalurinn einnig. Þar sannaðist hve góð hljóðvist hefur mikið segja. Þrátt fyrir opið svæði inn á gang og í bókasafnið ríkir notaleg ró og spjallstemmning í öllum matartímum sem vonandi verður til þess að allir njóti matar og samveru betur.

