Heimsókn og hamingjuóskir

Á dögunum kom Magnea Kristleifsdóttir fyrrum kennari við skólann í heimsókn færandi hendi með veitingar til starfsmanna sem við þökkum kærlega fyrir. Með henni var Elísabet Halldórsdóttir sem einnig starfaði hér um árabil. VIldu þær óska okkur öllum til hamingju með nýja glæsilega skólabyggingu. Við þökkum þeim stöllum fyrir heimsóknina og góðar óskir.