Síðustu vikur hafa bílar verið smíðaðir í Borgarfirði, í fyrsta skipti í áratugi. Reyndar bílar sem ganga hvorki fyrir eldsneyti né rafmagni, flestir knúnir af teygjum eða gormum. Þeir eru afrakstur vinnu 10. bekkinga í eðlisfræði þar sem þau voru að læra um hreyfiorku, núning og slíkt.
Þau fengu aðstoð hönnunarteymis frá leikskólanum Hnoðrabóli þar sem tveir elstu árgangarnir komu og sáu um hönnun á ytra útliti bílanna. Í lokin var svo keppni um hversu langt bílarnir gátu keyrt þar sem nemendur 10. bekkjar og Hnoðrabóls komu saman og áttu skemmtilega stund. Þetta var einstaklega skemmtilegt samstarf þar sem hæfileikar fólks fengu að blómstra óháð aldri og fyrri störfum.


















